Andvari - 01.01.1917, Blaðsíða 26
18
Þórhallur biskup Bjarnarson.
Andvar
meir í hlje frá stjórnmálum og veraldlegum störfum
með þeim huga að verja starfsþoli sínu, það sem eftir
væri daganna, meir en áður til kirkjulegra starfa.
Tók hann þá einn við útgáfu Nýs Kirkjublaðs, svo
sem áður er sagt, og gjörðist aðstoðarmaður Hall-
gríms biskups Sveinssonar, er þá hafði tekið bana-
mein sitt, en biskup var hann skipaður 19. sept.
1908. Það þótti nýlunda er það spurðist, að hann
ætlaði ekki að sækja biskupsvígslu til Danmerkur,
heldur taka hana hjer heima af Hallgrími biskupi,
formanni sínum. Hitt hafði verið venja alt frá siða-
skiftum, að ísl. biskupar sæktu vígslu til Sjálands-
biskups, og að eins tvisvar út af brugðið, þegar
Brynjólfur biskup vígði Jón Vígfússon í Skálholti 1674
og Sigurður biskup Stefánsson Geir Vídalín á Hól-
um 1797. Að vísu var ákveðið með konungsbrjefi
14. ág. 1789, að ísl. biskupar skyldu framvegis taka
vígslu hjer á landi, en að því boði varð ekki farið,
eftir að biskup var ekki orðinn nema einn á land-
inu. Pórhallur vildi eigi sitja sig úr færi að afmá
þetta undirlægjumark af ísl. kirkjunni, fyrst þess
var kostur, enda voru þeir einhuga um það báðir
biskuparnir. Þórhallur liefði helst kosið að sækja
vígsluna að Skálholti, en það bannaði heilsa Hall-
gríms biskups, og fór sú athöfn því fram í dóm-
kirkjunni í Rvík 16. sd. e. trin. 4. okt. 1908. Nær
2 árum síðar vigði hann vígslubiskup Skálholtsstiftis
hins forna; var honum þá mjög hugleikið að fram-
kvæma þá athöfn í Skálholti, eins og vígsla hins
vígslubiskupsins hafði farið fram á Hólum, en af
þvi gat þó ekki orðið. Nýlunda þótti það einnig, er
hann boðaði til hinnar fyrstu prestastefnu sinnar á
Þingvöllum, en ekki í Reykjavík, og hinnar næstu á