Andvari - 01.01.1917, Blaðsíða 161
Andvari.]
1875=1915.
153
fremur hið gagnstæða, þá vil jeg þó fara hjer bil beggja,
og gera tekjurnar 32 miljónir króna.
Tekjurnar fyrir árin 1916 og 1917 voru eins og
áður er ávikið 4,208 þúsund krónur, en þar frá verð-
ur að draga auk tillagsins frá Danmörku, tekjur af
fasteignum landssjóðs, viðlagasjóðstekjur og ýmsar
greiðslur og gjöld (5. gr. fjárl.). Verða þá eptir skatt-
ar og tollar (2. gr. fjárl.), 3,733,000 kr. Frá þessari
upphæð vill hr. Indr. Ein. draga póst- og símatekjur
650,000 kr. með því að þar sje einungis að ræða um
borgun fyrir unnið verk, er einstakir menn eða
einkafjelög hefðu alveg eins geta unnið fyrir menn, ef
landið hefði ekki tekið þetta að sjer, eins og ann-
arsstaðar tíðkast, af því það trj'ggir samgöngur het-
ur, en ef einkafjelög hefðu þetta á hendi, og getur
aílað landinu tekna, sem það þarf með. En þó margt
mæli með þvi, að draga þessar tekjur frá, bæði það
sem nú hefur verið bent á, og sjerstaklega það, að
þessir skattar koma mjög lítið niður á miklum þorra
manna, og að mikið af tekjunum er í rauninni að
eins látið úr einum vasanum í annan, þar sem lands-
sjóður borgar mikið a£ tekjunum, þ. e. símakostnað
og burðareyri allra embættismanna, sem nemur mörg-
um lugum þúsunda ljróna, þá vil jeg þó ekki draga
þessa uppliæð frá, af því að jeg er ekki alveg viss
um, að þessar tekjugreinar sjeu dregnar frá hjá öðr-
um þjóðum, þegar hundraðsgjaldið er reiknað út.
Jeg held því þessari upphæð, enda hverjum manni
innanhandar að reikna út skattgjaldið, að þeim skött-
um frádregnum, ef vilja. Skattar til landssjóðs árið
1916 verða því helmingur a£ 3,733,000 kr. eða
1,866,500 kr. = kr. 1,866,500
Flyt: kr. 1,866,500