Andvari - 01.01.1917, Blaðsíða 31
Andvari].
Þórhallur biskup Bjarnarson.
23
skugga yfir heimilið, er kona hans veiktist af ólælcn-
andi meinsemd, svo að hún lá rúmföst nær 3 ár,
þangað til hún andaðist 28. jan. 1913. í banalegunni
tók hún saman bók, er heitir »Dagbókin min«.
<}af biskup hana út eftir lát hennar og mælti svo
fyrir, að af andvirðinu skyldi mynda sjóð til styrktar
konum, er þjáðust af sömu meinsemd. Börn þeirra
öll fjögur voru þá uppkomin, og vígði biskup Tryggva,
eldra son sinn, þá sumarið eftir 1913 til prests i
Hestsþingum í Borgarfirði, og gekk hann um haust-
ið að eiga Önnu Klemensdóttur landritara. Vorið 1911
hafði hann gift Svöfu, eldri dóttur sína, Halldóri
Vilhjálmssyni, bróðursyni sínum, skólastjóra á Hvann-
eyri. Björn og Dóra voru eftir heima honum til að-
stoðar. Vorið 1916 fór Björn utan til þess að kynna
sjer gjörr landbúnað við búnaðarskólann í Ási, en þá
veiktist hann skyndilega og andaðist í Kristjaníu 13.
júlí. Var lík hans flutt heim og jarðað hjá móður
hans. Faðir hans stofnaði sjóð í minningu hans, á
stjórn Búnaðarfjelags íslands að hafa hönd yfir hon-
um og verja vöxtunum til að styrkja unga menn til
náms við búnaðarháskóla Norðmanna.
Heilsu biskups hafði mjög hnignað hin síðustu
missiri. Pó gegndi hann störfum sinum öllum, eins
og ekkert væri að, alt þangað til að hann lagðist
banaleguna 28. nóv. 1916. Hún varð eigi löng. Hann
liafði bæði mál og rænu, þó að hann væri oft sár-
þjáður. Börn hans, sjera Tryggvi og Dóra, voru yfir
honum, lásu fyrir hann og töluðu við hann. Gjörðu
vinir lians sjer góða von um bata, því að lík köst
hafði hann oft áður fengið. En 15. dag desember-
mánaðar þyngdi honum skyndilega. Skildu þá bæði
hann og aðrir, að skamt mundi eftir. Bauð það hon^