Andvari - 01.01.1877, Síða 42
38
Stjórnarlög íslands.
undirstaba fjármálefna og stjárnarskipunar íslands fram-
vegis, getum ver ekki, heldur en al[>íng, tekib hií> minnsta
tillit, [>ar sem hún hefir ekki gjört annab, en vaíiib ein-
tóman reyk í þessu máli. Auk [>ess verbur eigi varib,
ab þareb réttur íslenzkrar tdngu er því til fyrirstöbu, ab
nokkub þab lagabob verbi lögleidt eptir lögmætum hætti
á Islandi, sem konúngur hefir eigi samþykkt í íslenzkum
frumtexta og þínglesib liefir verib í íslenzkuin lagatexta,
þá leibir þaraf í þessu sambandi, ab lög 2. Januar, sem
eru gefin af ríkisþfngi og konúngi á dönsku, aldrei
fá öblazt Iagagildi hjá oss, meban lögtúnga vor stendur
úbreytt1.
Meb því, sem hér er talib, hefir og verib svarab
þeim, sem ab vísu eigi geta vib kanuast, ab skuldbind-
andi kraptur þessara laga fyrir vora liönd verbi bygbur
á gildi grundvallarlaga Dana fyrir ísland, en hafa þú
viljab láta sér skiljast, ab stjórnin hafi átt meb ab lögleiba
þau hjá oss, uaf því alþíng” — eins og stjórnin segir
1869 — ltsamkvæmt ebli málsins liafi einúngis átt ráb-
gjafar-atkvæbi, en ríkisþíngib samþykkis-atkvæbi nm hib
svonefnda stöbufrumvarp”. Ura þá má þó einnig, og fyrst
og fremst segja, ab þeir haíi eigi ab því gáb, ab frum-
varpib til laganna 2. Januar 18T1 hetir alls eigi verib Iagt
fyrir alþíuga, svo málavextir og athugasemdir þeirra eru
þes3u efni meb öllu óvibkomandi. En þarabauki væri
meb þessari kenníngu gjörsamlega afneitab samþykkis-
atkvæbi Islendínga, og þannig gengib á bak allra laga
þeirra, konúngsheita, yíirlýsínga stjórnarinnar og konúngs-
fulltrúa, sem landsréttindi vor hafa vib ab stybjast, ef
‘) smbr. Andvara III (1876) um rétt íslenzkrar tdngu, bls. 33.
3) sjá um meðferð pessa máls Ný Félagsrit XXVIlt (1871), bls.
1—127.