Andvari - 01.01.1883, Blaðsíða 44
42
Ferú um
þykkur og hefir vatnið myndað ótal jafnhliða gil niður í fast
berg, mjög ill yfirferðar, Djúpagil er þeirra mest; að því
eru leiibakkarnir snarbrattir og 50 fet og þar yfir á hæð;
í leysingum fossar vatnið eptir svona djúpu og bröttu
gili með ógurlegu afli, og þar liggja því á botninum
stóreflis biágrýtisbjörg x/g—1 faðmur að þvermáli, alla
vega núin og reist á rönd. Snjór var alstaðar á jörðu
fyrri hlutá dags, en seinna kom rigning. þ>egar kemur
yfir Múlann taka við sléttir sandar, eyrar og roksands-
hólar fram með Reykjaá upp undir Laugarvelli; fjöllin
á báðar hendur eru þó víðast víði vaxin upp eptir og
góð til beitar, og eins hér og hvar upp um dalinn,
þegar nær dregur Laugarvöllum. Um Laugarvelli og
þar fyrir norðan liggur hapt af melöldum yfir dalinn
þveran, en þar fyrir sunnan hefst hann aptur, þótt
grunnursé, alltupp undir jökla; heitir haun þá Sauðár-
dalur. Reykjaá (eða Laugarvallaá) sprettur upp í lindum
fyrir norðan Laugarvelli og rennur svo niður dal, en
Sauðá brýzt í gegn um hálsinn að sunnanverðu rétt fyrir
ofan melöldurnar, og rennur út í Jökuisá. Margt er
hér öðruvísi en á uppdrætti Islands, en vér urðum vegna
veðurs og tímaleysis að hætta að skyggnast um eptir
landslaginu, til þess að ná til byggða um kveldið.
Laugunum á Laugarvöllum er svo varið, að köld
lind hefir grafið sér farveg niður vellina niður í á;
í farveg þessum eru ótal smágöt. í bökkunum, er heitt
vatn streymir um út í lindina, svo að hvorttveggja myndar
heitan læk, er rennur niður í á. Hitinn í efstu opunum
var 68°C., en í hinum neðri 67V20. Vatnið í laugum
þessum er bragðlaust og litarlaust; það leysir upp dálítið
úr jarðveginum í kring, svo að við opin er sumstaðar
járnblaudinn rauður leir og hvcrahrúður dálítið á einstaka
stað. Vegna hitans eru flatirnar hér í kring huldar
kafgrasi, eins og eða meira en ábeztatúni, svo að klárarnir
okkar stóðu á blístri eptir litla stund. Niður við ána