Andvari - 01.01.1913, Page 202
140
Fiskisýningin
Það var mjög erfitt að átta sig á öllum þeim
aragrúa, er saman var safnaður í sýningarhöllinni,
og margt var þar sýnt sem að eins fagmenn gátu
haft gagn af að skoða.
í stuttu máli sagt, var þar sýnt:
1. Hvernig alls konar fiskitegundir eru veiddar.
2. Hvernig visindin vinna að því, að rannsaka eðli,
vöxt og viðgang fiskanna, og hvernig hægt sé að
ná valdi yfir auðæfum hafsins.
3. Hvernig íiskitegundirnar eru gerðar að verzlun-
arvöru.
4. Hvernig íiskur er hagnýtlur til manneldis, og
margskonar matur tilbúinn úr fiski.
Sýningunni var skift í tvær aðal-deildir: Fiski-
veiðadeild, og allsherjar gangvéladcild, sem voru að-
skildar á sýningarsvæðinu. Þessum deildum var aftur
skift í smærri deildir og þeim aftur í llokka. Aðal-
skifting deildanna var þessi:
1. d e i 1 d:
1. llokkur: Skip og bátar fyr og nú með seglum
og árum til fiskiveiða.
2. flokkur: Skip og bátar, með seglum, árum og
vélum fyr og nú til flutninga.
3. flokkur: Vélar, spil og ýms áhöld til að ferma
og afl'erma skip.
4. llokkur: Likön, (Modeller) af skipum og bát-
um ásamt teikningum af ýmsu tilheyr-
andi þessari deild.
Elzti bátur, sem sýndur var, er bygður árið 1720,
og var ánægjulegt að sjá hversu lagið og útlitið breytt-
ist smátt og smátt til batnaðar, og hvað mismunur-
inn var mikill á nútíðarbátunum, en sem lá mest í