Menntamál


Menntamál - 01.12.1935, Page 8

Menntamál - 01.12.1935, Page 8
150 MENNTAMÁL Á kynþroskaskeiði ungu stúlknanna fá þær á sig full- orðinna líkamsvöxt og lögun; hinn mánaðarlegi l)lóð- missir fer að gera varl við sig, og smám saman vakna svo kynhvatir kvenmannsins. Þessi aldur er ofl erfið- ur, með ýmiskonar vanstillingu á geði, án þess að stúlk- an geti gert sér grein fvrir því. — Allt stendur þetta í sambandi við myndun „hormón“-efna í eggjakerfunum o. fl. innvortis kirtlum, sem valda undursamlegum breyt- ingum í líkamanum. — Þessi byltingatími í lífi unga fólksins er í raun og veru merkilegur kafli i líffræði, sem fæstir ínunu vera fræddir um. Á þessu skeiði er unga fólkið jafnaðarlega með óróa og ágizkanir um kvnferðileg efni, ágizkanir, sem venjulega styðjast við slitrótta og ofl klúra fræðslu og tilgálur kunningjanna, en ekki hispurslausa og sanna þekking frá skólanum eða foreldrunum. Allir, sem komnir eru til vits og ára, vita reyndar, að fjölgun mannkynsins er afleiðing af samförum karls og konu, en það eru fæslir, sem hafa hugmynd um livar og hvernig cgg konunnar frjóvgast af sæði manns- ins, eða vita neitt að ráði um j)roska og lif fóstursins í móðurkviði. Það þýðir ekki fyrir fordómalítið fóík að ætla sér að finna skynsemi í sumu námsefni barna- og unglinga- skólanna. Þar eru t. d. kenndar hihliusögur, með ýms- um æfintýralegum j)jóðsögum og kraftaverkasögum frá Austurlöndum, og börnin eiga að festa sér i minni ár- töl úr ýmsum herkonungasögum. En hvað fá þau að vita um sinn eigin líkama? Hjá sumum áhugasömum náttúrufræðikennurum læra j)au reyndar eitthvað i líf- fræði, og í skólabókunum er ágrip af bygging manns- líkamans. En jjað vill verða út undan lijá kennslubóka- höfundunum, að lýsa innvortis kynfærum eða starfs- háttum þcirra. Þetta orsakast af gamaldags hugmynd- um um kynferðismóral, sem veldur feimni og tepru-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.