Menntamál - 01.04.1937, Qupperneq 62
56
MENNTAMÁI,
frá 1912. Og ég hefi gerl það vegna þess, að í þeim felst
ekki einungis skynsamleg og snjöll starfsskrá, heldur
einnig rétt lýsing, svo langt sem hún nær, á starfsemi
Rousseau-stofnunarinnar, eins og hún hefir síðan orð-
ið til og þróazt.
Ég hefi þegar getið þess, að ekkert sé fjær Rousseau-
skólanum og forustumönnum lians en fastheldni við
kennisetningar og einstakar kennsluaðferðir eða slcóla-
kerl'i. Engan þarf því að undra, þótt ekki sé til neitt
skólakerfi né kennsluaðferð kennd við Ronsseau-skól-
ann, Claparéde eða Bovet. Hin ódauðlegu ummæli Ara
fróða: „Hvatke es missagt es i fræðom þessom, þá
es scyllt at iiava þat helldr, es sannára roynesc“,
gælu því að þessu levti verið mjög táknandi
fyrir Rousseau-skólann. Með því er þó engan
veginn sagt, að skólinn sé stefnulaus, enda fer
þvi fjærri. Heildarviðhorf skólans til uppeldismála hef-
ir frá upphafi verið skörp og ákveðin harálta fyrir því,
sem Claparéde nefnir éducation fonclionelle — starf-
rænt uiipeldi mætti kalla það á íslenzku. Iiinn starf-
ræni skóli hefir á þýzku verið nefndur Arbeitssclmle. I
Rousseau-skólanum varð lil hin franska þýðing, école
active. Bókstafleg, íslenzk þýðing á þýzka orðinu er
starfskóli eða vinnuskóli og hefir hið síðarnefnda stund-
um vcrið notað i þessari merkingu. En um íslenzka orð-
ið gildir sama og liin erlendu, að það veldur þráfald-
lega misskilningi, Með orðinu vinna í þessu samhandi
er ekki einungis átt við handavinnu eða líkamlega vinnu,
eins og ýmsir virðast álíta. Um hvorttveggja getur ver-
ið að ræða jöfnum höndum, andlega vinnu og likam-
lega. Aðalatriðið er, að vinna táknar liér lífrænt, skap-
andi starf í mótsetningu við hið vélræna, einhliða minn-
isnám, sem svo mjög hefir tíðkazl í fjölmörgum skólum.
Svo sem kunnugt er hafa viðsvegar um lönd vaxið
upp skólakerfi og kennsluaðferðir, þar sem reynt er