Menntamál - 01.12.1938, Blaðsíða 31
MENNTAMÁL
93
Þing Aljpðasambands kennara i
Kaupmannahöfn.
Sú er venja, að Alþjóðasamband kennara (I. F. T. A.)
heldur ársþing sin sitt í liverjn landi, og fylgir þó engri
fastri röð. í fyrra var það lialdið i París, en nú í Kaup-
mannahöfn. Kennarafélög flestra landa í Evrópu eru i
Sambandinu. Einræðisríkin, Þýzkaland, ítalía og Rúss-
land standa þó utan þess, enda mun ekki vera um nein
sjálfstæð kennarafélög að ræða í þessum löndum.
Þá eru og kennarafélög í öðrum lieimsálfum í samband-
inu, t. d. i Ástralíu, Nýja Sjál. og Kína.
Að þessu sinni var þingið lialdið í Kaupmannahöfn, og
stóð það dagana 22.—25. ágúsl. Fundirnir voru haldnir í
Kristjánsborgarhöli í húsakynnum Rikisþingsins. A þingv
inu mættu 37 fulltrúar, og voru þeir frá 17 löndum. Aðeins
einn þeirra var utan Evrópu, próf. Li Yu-Ying frá Kina.
Kennslumálaráðherra Dana, J. Jörgensen, dr. Kaper
borgarstjóri og Kaalund-Jörgesen fræðslumálastjóri voru
viðstaddir, er þingið var sett, og buðu gestina velkomna.
Fyrir þinginu lágu m. a. þessi mál:
1. Sambandið mitli barnaskóla og framhaldsskóla.
2. Lífeyrir kennara.
3. Barna- og unglingabókmenntir.
4. Hjálp til barna spánskra kennara vegna borgarastyrj-
aldarinnar á Spáni.
Þegar rætt var um sambandið milli barnaskóla og fram-
lialdsskóla, lagði framkvæmdastjórn sambandsins fram
ályktun, þar sem megináherzla var lögð á, að skólagjöld
mættu ekki liamla fátækum nemendum að ganga í fram-
haldsskóla. I öðru lagi var bent á, að æskilegt væri, að við
lok barnaskólanáms væru nemendurnir prófaðir með það
fyrir augum, að í ljós kæmi sérliæfileikar þeirra. Gæti