Menntamál - 01.12.1938, Blaðsíða 130
192
MENNTAMAI.
4) Bækur gefnar út í anda skilnaðarsinna, sem fjalla uin. „Ausl-
urríkisbúann" og bækur, sem verja eða lofa stjórnartíð Dol-
fuss—Schuschnigg.
5) Verk, sem túlka vantraust á Þýzkalandi, niikilmennum jiess
og hetjum. Bækur, sem leitast við að meta gildi franskrar,
enskrar og amerískrar menningar hærra en Þýzkalands, t.
d. verk bræðranna Mann, Remarques o. s. frv.
(i) Bækur, sein gagnrýna persónu foringjans, verk hans, naz-
ismann o. s. frv.
(Verordnungsblatt des Stadtschulrates fúr Wien, 15. mai ’B8).
DANMÖRK.
Dómstóllinn í Brædstrup hefir fyrir skönnnu dæmt í skóla-
máli, sem fróðlegt er fyrir alla að heyra um. Frá þessu segir
svo í blaðinu „JyIIandsposten“:
í janúar síðastl. kom húsmaður frá Trysting til sóknarprests-
ins, sem er formaður skólanefndar, og spurði, livor dóttir sín
gæti fengið fullnaðarpróf. Hún var fædd 7. okt. 1924, og kom i
skólann 1. nóv. 1931.
Samkv. reglugerð skólans í 'J’rysting, verður barn, sem á að
útskrifast 31. marz, að vera 14 ára fyrir 1. okt. sama ár. Þarna
vantaði ]iví 7 daga til að barnið hefði náð löglegum aldri, svo
að presturinn neitaði beiðninni.
í nágrannaskólanum í Klovborg, geta börnin útskrifast 31.
.marz, ef þau eru 14 ára fyrir 1. nóv. Eftir að faðirinn hafði
lalað við prestinn, sendi hann dóttur sína til frændfólks sins
í Klovborgarsókn, og þar hjálpaði hún til við heimilisstörf. Hann
sneri sér nú að nýju til prestsins, og bað um að barnið fengi
að útskrifast 31. marz, en var neitað aftur.
Faðirinn kærði nú til amtsskólaráðsins og síðan til kennslu-
málaráðuneytisins. A báðum þessum stöðum gekk málið skóla-
nefndinni í vil, og jafnframt var mál höfðað gegn föðurnum,
fyíir að liafa ráðið skólaskylt barn i vinnu. Dómstóllinn í Bræd-
strup hefir nú dæmt hann lil að greiða 40 kr. í sekt.
(Folkeskolen, 10. iióv. 1938).
Utgefandi: Samband íslenzkra barnakennara.
Útgáfustjórn: Sigurður Thorlacius, form., Guðjón Guðjónsson og
Sigríður Magnúsdóttir.
Ritstjóri: Sigurður Thorlacius, Austurbæjarskólanum.
Afgreiðslu- og innheimtum.: Sigriður Magnúsdóttir, Þórsgötu 19.
Félagsprentsmiðjan h.f.