Menntamál - 01.12.1938, Blaðsíða 128
190
MENNTAMÁL
PERÚ.
A síðuslu 5 árum hafa orðið allmiklar framfarý' i kennslu-
málum í Perú.
Samkvæmt tilskipun frá 1933 hefir verið komið á eftirliti með
einkaskólum. Samvinna heimila og skóla hefir verið efld. Þá
hefir ríkisstjórnin látið útgáfu kennslubóka til sín taka.
Til þess að bæta upp næringarskort barna fátækra verka-
manna, hefir verið ákveðið, að hin bágstöddu börn skuli fá ó-
keypis máltíð í almenningsmatsöluhúsunum i Lima og Callao.
Þessari ákvörðun hefir verið tekið vel undantekningarlaust í
öllum blöðum.
(Magisterio, Nicaragua, apríl 1938).
PÓLLAND.
Barnaskólunum l'jölgar ört. Samkvæmt nýjustu skýrslum frá
aðalskrifstofu ríkishagstofunnar í Póllandi, kemur i Jjós, að
barnaskólum og börnum, sem sækja skóla, hefir fjölgað mjög
ört. Þannig voru skólaárið 1930—1931 2(5(545 barnaskólar slarf-
andi með 395898(5 nemendum. En nú á þessu skólaári, eru barna-
skólarnir 28751 með 4853484 nemendum. 27235 eru ríkisskólar
og 152(5 einkaskólar. Al' ríkisskólunum eru 27072 i sveitum og
2103 i kaupstöðum.
RÚMENÍA.
Frístundir verkamanna. Michel Ralea, verkamálaráðherra, hef-
ir nýlega lagt fyrir ráðuneytisfund tillögur, sem stefna í ])á átt,
að gera verkamönnum kleift, að nota betur frístundir sínar.
í tillögum verkamálaráðherrans er gert ráð fyrir, að starf-
rækt verði stofnun, er nefnist „Vinna og Gleði“, og sejn skipt
verður i 5 deildir: 1) íþróttir, líkamsrækt og ferðalög. 2) Leik-
hús fyrir verkamenn. 3) Kvikmyndir og útvarp. 4) Fyrirlestr-
ar og bókasöfn. 5) Tónlist.
Gert er ráð fyrir, að til að byrja með, verði 23 milljóna sjóði
varið til þessarar starfsemi.
Ráðherrafundurinn samþykkti tillögur Ralea.
(Le Temps, París, 11. ágúst 1938).
SKOTLAND.
Skólaárið 1937 fengu 35818 skólabörn ókeypis máltíð í skól-
unum, en 39827 önnur börn fengu máltíð gegn borgun. 66300
börn fengu ókeypis mjólk í skólunum og 260700 gegn borgun.
Allur kostnaður hins opinbera vegna matgjafa, mjólkurgjafa
og falnaðar handa skólabörnum, nam 104500 sterlingspundum.