Kirkjuritið - 01.12.1947, Blaðsíða 104
372
Pétur Ingjaldsson:
Nóv. - Des.
fram til dala Húnaþings, vestur á Yatnsnes og norður
til hinna háu Strandafjalla, allt frá Grímsey á Stein-
grímsfirði alla leið jafnvel til Horns. En veðrasamt er
mjög á Ströndum, eins og segir í vísu Guðmundar Ein-
arssonar:
Illviðrin á argri Strönd
illt er við að búa,
að henni þyrfti einhver hönd
æðri því að lilúa.
Séra Eggert var lieppinn að því leyti, að einn forveri
lians í embættinu, séra Björn Þorláksson, dáinn 1862,
iiafði verið mjög athafnasamur á Höskuldsstöðum.
Hann var húþegn góður til lands og sjávar, reri jafn-
vel á sunnudögum til fiskjar og var kominn að fyrir
messu.
Séra Björn hyggði upp öll útihús staðarins, með slíkri
fyrirmynd, að þau standa að mestu ennþá, en eru
nú að falli komin. Hann lét og hlaða vallargarð um
tún allt og starfaði að því sjálfur með öðrum manni.
Endalok þessa merka manns urðu þau, að er hann
reið úr erfi séra Jóns Jónssonar í Steinnesi, þá reið hann
á snúrustag á Þingeyrum, og' hlaut af byltu, er talið
var, að hefði leitt hann til hana stuttu síðar.
Séra Eggert tók því við staðnum í góðu ásigkomulagi,
að því fráskildu, að kirkja staðarins var orðin lélegt
hús. Árið 1872 var áformað að byggja hana að nýju,
en hafist handa um það 1874, er leyfi hafði fengizt til
að hyggja utangarðs- Svo er að sjá sem kirkjusmíðinni
hafi ekki verið lokið fyr en 1877. Eiríkur Briem pró-
fastur segir hina nýju kirkju prýðilegasta hús, enda
mun hún hafa verið með reisulegustu sveitakirkjum á
þeim tíma- Kirkjan er að unnnáli: 15 álnir á lengd,
11% alin á breidd og frá grunni uppundir vindskeið
11 álnir. Turn er á kirkjunni upp úr þaki framan, og
eru 23 álnir frá grunni til kross þess, sem efst situr á
turninum- Séra Eggert mun hafa verið hvatamaður að