Kirkjuritið - 01.12.1947, Blaðsíða 50
318
Aldarafmæli Prestaskólans:
Nóv. - Des.
SigurÖtir Melsteð lektor.
Helgi Hálfdánarson lektor.
Þriðji forstöðumaður Prestaskólans var séra Helgi Hálf-
dánarson, frá 1. október 1885 til dauðadags 2. janúar 1894,
en áður hafði hann verið samkennari Sigurðar Melsted í
18 ár. Kom þar, að nálega öll prestastétt Islands átti þá
að lærifeðrum, annanhvorn eða báða.
Séra Helgi lektor var skarpgáfaður, hugsunin einkar ljós
og framsetning öll að sama skapi, svo að nemendur hans
dáðust að. Kennslubækur hans, sem út hafa verið gefnar,
bera einnig um það glöggt vitni. Hann var eljumaður og
atorku og krafðist hins sama af lærisveinum sínum, einarð-
ur við þá og opinskár, hvort sem þeim líkaði betur eða ver,
heilhugi og hiklaus. Hann kenndi af miklu fjöri og eldmóði.
Duldist engum, að það, sem hann flutti, var honum hjart-
ans mál. „Ekkert nema Kristur og hann krossfestur“, voru
einkunnarorð hans. Og þeir þrír, sem mæltu eftir hann,
völdu allir sama textann: ,,Að lifa er mér Kristur, en að
deyja er ávinningur fyrir mig“ [Fil. 1,21]. Prédikari var
séra Helgi ágætur, svo að nemendur hans máttu einnig
mikið af honum læra í kirkjunni. Hann var andríkt sálma-
skáld og átti marga fagra sálma í Sálmabókinni 1886, sem
hann vann að manna mest og hefir ef til vill verið bezta