Kirkjuritið - 01.12.1947, Blaðsíða 87
KirkjuritiS.
Séra Ölafur Magnússon.
355
Stúdent varð hann 19 ára, 1884, en kandidat í guðfræði
1887. Sama ár sótti hann um Eyvindarhóla undir Eyjafjöll-
um, og var veitt það embætti 17. okt. 1887, en þangað fór
hann ekki, því að honum var veitt Sandfell í öræfum 17.
maí næsta ár, og þangað vigðist hann 21. s. m. 1 þeim sama
mánuði, þ. 25., gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína
Lydiu Angeliku Knudsen frá Reykjavík. Svo halda þau
þessi ungu hjón, bæði uppalin í Reykjavík, til þessa afskekt-
asta staðar á Islandi og hófu þar búskap sinn þetta sama
vor. Aðkoman var ekki góð og umskiptin því mikil, en þau
voru ung með bjartar vonir, og þau sungu gleði í bæinn,
þótt hrörlegur væri, svo brátt birti yfir, og þar bjuggu þau
góðu búi í 15 ár, unz séra Ólafi var veitt Arnarbælispresta-
kall í ölvesi 12. mars 1903. Þar starfaði hann í 37 ár, eða
til ársins 1940, og hafði þá gegnt prestsembætti í 52 ár,
er hann varð að láta af embætti fyrir aldurs sakir, en í fullu
fjöri þó, sem væri hann enn ungur.
Prófastur í Árnesprófastsdæmi var séra Ólafur skipaður
9. nóv. 1926 og gegndi því starfi til 1. jan. 1940 eða í full
14 ár.
En þó séra Ólafur yrði að láta af störfum, er hann varð
75 ára að aldri, samkvæmt lögum, þá hætti hann ekki
störfum sínum í og fyrir kirkjuna, því flest þeirra 7 ára,
sem hann lifði eftir það, gegndi hann, meira og minna, em-
bættum fyrir sjúka embættisbræður sína innan prófasts-
dæmisins, og síðasta sumarið, sem hann lifði, þá á 82. ári,
tók hann að sér að gegna prófasts- og prestsembætti pró-
fastsins í Rangárvallaprófastsdæmi, meðan hann var í utan-
landsför í nokkra mánuði. Það má því svo heita, að séra
Ölafur væri í fullu starfi innan kirkjunnar í öll þau 59
ár, sem liðu frá vígslu hans til dauðadags.
Já, hann starfaði sannarlega fyrir kirkjuna og var þar
allur, það var yndi hans að flytja mönnunum boðskap um
elsku Drottins, náð og miskunn frelsarans Jesú Krists. Hann
var vissulega einn af mestu og áhugasömustu prestum lands
vors síðustu hálfa öld og mjög dáður af söfnuðum sínum,