Kirkjuritið - 01.06.1966, Side 57
KIRKJUHITIÐ
295
an kirkjunnar, og nú var lionum ljúft að fylgja því boði. Sam-
vmna milli hans og prestastéttarinnar varð með ágætum, sem
koni meðal annars frain í því, að hin árlega prestastefna,
synodus, varð brátt miklu ríkari þáttur í kirkjulífinu en áður
hafði verið um áratugi, og hélzt svo alla hans biskupstíð og
síðan til þessa dags. Félagsskapur presta efldist og einnig út-
gafustarfsemi kirkjunnar. Að vísu ber að viðurkenna, að bætt-
ar samgöngur gerðu á þessu tímabili ólíkt hægara fyrir uin
samfundi presta en áður var, en óvíst er þó, hvernig úr því
hefði ráðizt, ef ekki liefði þessi vakning komið til. Og góður
undirbúningur prestastefnanna af hálfu biskups og sköruleg
stjorn lians á þeirn samkomum gaf prestum glögga mynd af
l)ví, hversu ánægjulegar og nytsamar slíkar samkomur gætu
Ver'ð, enda mynduðust brátt smærri prestafélög um land allt.
En eins og dr. Jón var alhafnasamur í biskupsembættinu, eins
' arð liann ástsæll og naut mikillar og vaxandi virSingar innan
^ands og utan. Eigi aðeins í orði, lieldur og raunverulega, var
hann sameiningartákn vorrar stríðandi kirkju, sem svo oft hef-
,,r lantað sinn þrótt með því að vera ósamþykk innbyrðis.
Mörg ytri tákn virðingar voru dr. Jóni veitt. Á 400 ára af-
,næli siðabótar Lúthers, 31. okt. 1917, var liann kjörinn heið-
,,rsdoktor við háskólann í Kliöfn. Og á 70 ára afmæli dr.
•lóns veitti Háskóli Islands honum bina sömu sæmd. Æðsta
^slenzkt heiðursmerki, stórkross Fálkaorðunnar, var honum
'eitt, er bann lét af embætti, og vegleg heiðursmerki hlaut
hann frá bræðraþjóðum vorurn, Dönum og Norðmönnum.
Mikill ljórni bvílir yfir stofnun biskupsembætta og starfi
hnna fyrstu biskupa á blómatíð vors forna þjóðveldis. Síðar
^hiptust þar á skin og skuggar, eins og á öðrum sviðum þjóð-
1 s vors. En þegar vér rennum augum yfir raðir biskupa vorra
ftá fyrstu tíð, þá finnum vér þar æðimörg nöfn liinna ágæt-
llstu manna, er þjóð vor liefur átt. Án þess að fara nokkuð
•'anar út í mannjöfnuð, get ég ekki orða bundizt um það, að
lýsa mig samþykkan mikilsvirtum íslenzkum guðfræðingum,
Se,n liafa í ritum skipað dr. Jóni Helgasyni í fremstu röð meðal
hiskupa vorra eftir siðaskipti og í sumum greinum fremstan
þeirra allra. En liversu sem menn líta á það mál, þá mun það
'era samhuga ósk vor og bæn, að af starfi liins mikilhæfa