Kirkjuritið - 01.06.1966, Síða 22
260
KIRKJURITIÐ
álirif innri átaka bæði við efni og form, og aflsmunir einbeittr-
ar hugsunar. Hann var drengilegur maður í sjón og raun með
sterkan yl í djúpum augum.
2. Sr. Bjarni Jónsson, vígslubiskup, lézt 19. nóvember.
Hann fæddist 21. október 1881 í Mýrarliolti við Reykjavík,
sonur hjónanna Ólafar Hafliðadóttur og Jóns Odddssonar,
verkamanns. Hann varð stúdent í Reykjavík vorið 1902 og
kandidat í guðfræði frá Kaupmannahafnarliáskóla vorið 1907.
Gerðist þá skólastjóri barna- og unglingaskólans á ísafirði til
vorsins 1910, er liann var skipaður 2. prestur við dómkirkj-
una í Reykjavík. Dómkirkjuprestur varð hann 1924, prófast-
ur í Kjalarnessprófastsdæmi 1932—38, —- sagði þá því starfi
lausu — dómprófastur í Reykjavík 1945, vígslubiskup í Skál-
holtsbiskupsdæmi 1937. Hann var prófdómari í guðfræði við
Háskólann frá stofnun hans til 1963, doctor theologiae lionoris
causa við Háskóla Islands, lieiðursborgari Reykjavíkurborgar.
Fékk lausn frá prests- og dómprófastsstörfum á sjötugasta
aldursári sínu, frá 1. júní 1951, en var eftir sem áður sístarf-
andii prestur meðal fyrri sóknarbarna og gegndi víðtækum
prédikunarstörfum. Hann var formaður KFUM frá 1911 og
ötull starfsmaður þar til æviloka. Þreki sínu undraverðu fékk
liann að lialda lítt skertu til efstu ára og gleði sína, sem var
annáluð, liafði hann ófölskvaða þar til liann var kvaddur á
liinzta hólm.
Hann kvæntist árið 1913 eftirlifandi konu sinni, Áslaugu
Ágústsdóttur. Börn þeirra þrjú eru öll á lífi.
Með sr. Bjarna er fallinn sá prestur, sem flestum liefur þjóu'
að allra íslenzkra presta til þessa dags. Og margir eru þeir?
sem svo dáðu liann, að þeir liefðu ekki liikað við að lýsa þvl
sem sínu persónulega mati, að betur muni enginn þjónað hafa-
Víst er það, að þær starfskvaðir, sem hann átti lengstum a®
gegna í prestsskapnum, voru einsdæmi í vorri kirkjusögu °S
með ólíkindum, hversu honum fórst við að skila þeim
liöndum. Um vinsældir liér í borg og almenna tiltrú átti lianö
engan keppinaut. Meðal presta var það einmælt, að engin11
væri lionum líkur um kennimannlegt atgervi á flesta grein.
starfsþroska og stórmannlega persónu. Hann liefur átt þa^