Kirkjuritið - 01.06.1966, Blaðsíða 38
276
KIIIKJURITIÐ
iimiliald, ef þeir, sem þessn flíka, eru ekki að því leyti, er
verkin sýna, neitt verulega kristnir.
Þetta er sagt af því, að nú á dögum virðist æ fleirum verða
ljóst, að lieimurinn þarfnist aukinnar kristni. En samtímis
gerast þær raddir æ liáværari, sem krefjast þess að hún konii
ekki aðallega fram í orðum, lieldur verkum — í daglegri lífs-
breytni manna, livaða sess, sem þeir skipa. Til dæmis með
siðlireinu líferni og friðsamlegri og bróðurlegri andspyrnu gegn
allri óréttvísi og manndrápum, livar sem er, svo að eittlivað
sé nefnt.
Þannig — eins og í frumkristni — á kirkjan að vera í sókn,
en ekki í vörn, livað þá á flótta.
Og í þessu stríði, baráttu fyrir réttlætinu, friðinum, bróður-
legri samvinnu og samúðarfullum skilningi er hver maður
kvaddur af Kristi til liðs um víða veröld.
ÞaS, sem aS kallar
Allir liafa gott af því að þeim sé sagt til syndanna, og augi*
þeirra opnuð fyrir því, sem ábótavant er, eða unnt að gera
betur. Og kirkjan er livorki alsköpuð né fullkomin frekar en
mennirnir, seni hana mynda. Hún þarf alltaf að gæta þess
liverju liún ætti að breyta til batnaðar.
Ég lieyrði kunnan skólamann balda ágætt erindi á dögun-
um fræðslumálin og skólakerfið. Hann talaði þar m. a. n*n
þrenns konar skóla. Gamla skólann, sem liefði verið í föstuiu
skorðum áratugum, ef ekki öldum saman. TregSuskólann, seiu
að vísu liefði tekið iniklum umbótum frá gamla skólanuni, eu
færi þó afar varlega í stakkaskiptin og béldi eins og auðið vsei'*
í það gamla. (Og þetta væri skólinn okkar bérlendis í dag)-
Loks væri nýi skólinn. Hann sniði sér ekki aðeins stakk og
tæki eftir nauðsyn og viðborfum nútímans, lieldur reyndi
skyggnast eftir því, livaða kröfur framtíðin mundi bera í skaUti
sínu. Leitaðist við að sjá, þótt ekki væri nema tuttugu ár fraiu
í tímann og miða þegar að því markinu. Sú væri ráðandi skoðuu
leiðandi skólamanna í Svíþjóð, sagði liann, ef ég man rétt-
Ég gat ekki varizt þess að spyrja mig, livort vér kirkjunnar
menn værum ekki á „tregðu“-stiginu eins og skólamenuirnir-