Jörð - 01.06.1943, Page 82

Jörð - 01.06.1943, Page 82
öðru sinni barg Skjóni mér með skerpu sinni, upp á grasbakka, af sundi. Kemur sú saga þessu ekki frekar við. Enginn skyldi ætla, að ég geri lítið úr hyggindum, í sambandi við þetta, til samanburðar við eigið liyggjuvit. Því fer fjarri. Mér leizt vel á hestinn. Það var allt og sumt. En hafi önnur vitvera, á einhvern liátt, komið mér til þessara „hrossakaupa", þá lilýt ég að taka þau ráð fram yfir hyggindaráðin, sem miðuð voru við krónur og aura. SAGAN um það, þegar ég fór í Sandvatnið, er ekki lengri. En sagan um hitt, hvernig á þvi stóð, að ég „lijálp- aðist af“, eins og eilt barnið frá Hvammkoti, er ósögð og ég býst ekki við, að hún verði sögð. Að minnsta kosti er það ekki á mínu færi. Hún er ein af þessum mörgu ráðgátum, þar sem hver spurningin rekur aðra, og öllu er ósvarað, hráefni, sem engum getur að gagni komið. Þrátt fyrir það, að ég hef það á vitorði, að þær séu fánýti, ætla ég þó að varpa nokkrum fram. Hvaða afl var það, sem kom mér, á fleygiferð eftir Sandvatnsbotninum, yfir um breiðan og straumharðan álinn, að litlu eyrinni vestan megin? Að mínu viti var það mjög óeðlilegt. Sennilegast þykir mér, að ég liafi fálmað og krafsað mig sjálfur þangað, en víst er hitt, að sjálfrátt var það ekki. Og hvað stjórnaði þá gerðum mínum? Hver skipti sér af þeim smámunum, hvað yrði um þetta rekald? Ég veit það ekki. En það er sannfær- ing mín, að hulinn máttur, mér óþekktur og utan að kom- inn, hafi ráðið þeirri feigðarlegu för. Hvers vegna henti mig þetta? Ég hafði ekki þá afsökun, að ég væri viðvan- ingur að velja straumvötn. Ég liafði verið tvö sumur i Hrísnesi, á hakka Hólmsár, sem var þá óbrúuð, ferju- laus og talin með verstu vötnum. Ég hafði oft farið yfir hana vonda og í miklum vatnavöxtum og síðast þenna morgun. Ég hafði oft fylgt mönnum yfir ána eða sótt þá og leiðbeint þeim. Ég hafði haustið áður verið klukku- tímum saman að reiða fullorðna sauði yfir Hólmsá, þar sem hún var á herðatopp, ásamt Jóni Einarssyni í Hemru. 176 JÖRÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.