Prestafélagsritið - 01.01.1923, Qupperneq 18
Prestafélagsritið.
Þorvaldur víðförii.
13
hann brosandi: »Sannliga er ungum smásveini eigi neitanda
svá heilagt embætti, allra helzt er hann hefir heilsamligra
skilning á sínu ráði en frændur hans rosknir«. Var sveinninn
síðan skírður. Og mörg fleiri börn hafa vafalaust hlotið skírn
af þeim biskupi.
Þá bjó að Asi í Hjaltadal Þorvarður Spak-Böðvarsson, einn
af fremstu höfðingjum á íslandi á þeim tímum. Sagnir eru
um það, að hann hafi tekið trú á Englandi, en hitt mun rétt-
ara, að þeir Þorvaldur og biskup hafi kristnað hann. Hann
reisti kirkju á bæ sínum árið 984, og kemur það vel heim
við það, að hann hafi verið skírður 982 eða 983. Sú kirkja
hefir einna fyrst veinð gerð af Germönum hér á landi, og
ekki af vanefnum. Biskup hefir að líkindum sjálfur vígt hana,
og verður prestur við hana einn af klerkunum, sem komu út
með þeim Þorvaldi. Þar eignast kristnin fagran gróðurlund.
Var því ekki að undra, þótt hatursmönnum hennar heiðnum
léki hugur á að drepa prestinn eða kveikja í kirkjunni. En
þar brann þegar fyrir bál hið innra, sem þeir fengu ekki
staðist. Gæti helgisagan um vernd kirkjunnar fyrir þeim bent á
þann sannleika. Þeir komu um nótt til þess að leggja eld í
hana, en er þeir gengu í kirkjugarðinn, virtisf þeim kirkjan
öll standa í loga og hurfu aftur við það.
Um Húnaþing hafa þeir Þorvaldur hagað ferðum sínum
eftir því, sem bezt hefir staðið á í hvert sinn, án þess bein-
línis að búast í sérstakan trúboðsleiðangur frá Lækjamóti.
Enda hefir þess síður gerst þörf þar. Þeir hafa lifað nánari
samvistum við héraðsmenn sína heldur en aðra og áhrif kristn-
innar ef til vill rist þar dýpst. Nýrri mynd bregður upp, er
minnir á líf papanna fyrir meir en tveim öldum. Þeir biskup
skíra mann, sem Máni heitir og á heima í Holti í Kólgumýr-
um. Hann bygði kirkju á bæ sínum og var þar á bænum
bæði nætur og daga og varði svo æfi sinni íil þess að hjálpa
fátækum mönnum og bágstöddum. Var hann því kallaður hinn
kristni, að hann sýndi það með lífi sínu, að trú hans var hon-
um heilagt alvörumál. Hann forðaðist samneyti við heiðna
menn og gerðist einsetumaður að lokum. Haustið 982 eru