Prestafélagsritið - 01.01.1923, Blaðsíða 88
Prestaféiagsritið. Kristni og þjóðlíf á íslandi. 83
því með mestu stillingu, fyllilega sannfærðir um, að það gæti
ekki orðið verra, sem við tæki, en það, er þeir höfðu átt við
að búa lengst af síðan 1264.
Hinna kirkjulegu afskifta frá Noregi varð helzt vart á þessu
tímaskeiði þegar biskupaskifti urðu hér á landi eða þegar
sendir voru út hingað eftirlitsmenn eða fjárbeiðslumenn, til
þess að kría fé út úr landsmönnum. í sjálfu sér var þetta af-
skiftaleysi skaðlaust og hefði getað verið til góðs, ef góðir inn-
lendir menn hefðu með völdin farið úti hér, menn með lifandi
áhuga á öllum högum þjóðarinnar, sem þeir skyldu vera hirðar
fyrir, og með skilningi á því, sem henni væri fyrir beztu. ís-
lenzku biskuparnir innlendu, þeir Arni Þorláksson, Arni Helga-
son, Jörundur Þorsteinsson og Lárentius Kálfsson, voru vissu-
lega allir fjórir mikilhæfir menn, hvernig sem menn annars
vilja dæma þá suma hverja, t. a. m. Arna Þorláksson. En
þegar kemur fram á 14. öldina verður það föst regla, að velja
útlenda menn í íslenzku biskupsembættin, menn sem voru al-
ókunnugir lífi og háttum landsmanna og létu flestir hag þjóð-
arinnar liggja sér í léttu rúmi. Biskupsár sfn (að því leyti sem
þeir höfðu búsetu hér) skoðuðu þeir sem nokkurs konar út-
legðarár, sem þeir þá líka notuðu til þess í eigin hagsmuna
skyni að efla vald kirkjunnar. Við sögu þjóðarinnar, tungu og
hókmentir lögðu þeir enga rækt og álitu íslenzkt þjóðerni
landsmanna sér í flestum greinum óviðkomandi. Hins vegar
höfðu þeir einatt í frammi allskonar yfirgang og ójöfnuð, til
þess að gera sér dvölina hér sem arðsamasta. Um andleg efni
hugsuðu þeir flestir sama sem ekkert, enda voru þeir fæstir
lærdómsmenn, svo orð sé á því gerandi. Skólahald á biskups-
stólunum lagðist þá líka niður að mestu. Af útlendu biskup-
wnum hér, eftir að erlenda biskupsvaldið algerist, vitum vér
aðeins um Danann Pétur Nikulásson á Hólum, að hann hefir
haldið skóla á staðnum, en þó er ekki fyrir það girt, að fleiri
^afi gert það, þótt þess sé ekki getið í næsta ófullkomnum
heimildarritum að sögu þessara tíma.
Venjulega er svo talið, að óslitin röð útlendra manna hafi
skipað biskupsstólinn á Hólum frá 1342—1520, alls 11, en í