Prestafélagsritið - 01.01.1923, Síða 119
114
Ólafur Ólafsson:
Prestafélagsriti&..
þverrandi, kom fyrsti katólski kristniboðinn, Jóhannes frá Monte
Corvino, til Kína; stóð sjálfur páfinn í Rómaborg fyrir sendi-
för hans. Mongólska keisaraættin Khan, sat þá að völdum í
Peking; hugði páfinn, Nikulás IV., gott til að fá kristnað svo
voldugan þjóðhöfðingja.
Árið 1292 kom Jóhannes frá Monte Corvino til Kína og
fékk beztu viðtökur hjá hinum mikla Khan Kublai. Dráðlega
bygði hann kirkju í Peking, þúsundir manna létu skírast og
fjölmargir söfnuðir mynduðust. Nýja testamentið og Davíðs-
sálma þýddi hann á mál Mongóla. — Nokkrir katólskir prestar
voru sendir honum til aðstoðar og nýjir söfnuðir bættust við
árlega.
Corvino hefir vafalaust verið sannur kristniboði, »verkamaður,
er ekki þarf að skammast sín«; hann dó í hárri elli og hlaut
þá hrós fyrir að hafa »snúið 30000 heiðingjum* til krist-
innar trúar.
Eftir aðeins eina öld hverfur þó þetta fyrsta kristniboð
katólsku kirkjunnar í Kína alveg úr sögunni. Er stjórnarskifti
urðu 1368, mistu Mongólar öll völd; settist þá að ríkjum
kínversk konungsætt (Ming), sem mjög var í nöp við öll út-
lend áhrif, en þó einkanlega katólska trúboðið. Lét hún myrða
alla presta og munka og uppræta söfnuðina. En Búddhatrúin
fékk mjög hagstæða tíma.
Svo liðu nálega tvær aldir; hlið hins mikla »múrs< voru
lokuð án þess nokkur boðberi Krists berði að dyrum.
En 1542 sker Franz Xavier upp herör; fór hann þá í trú-
boðserindum til Indlands og hepnaðist mjög vel. »Amplius,
amplius* (áfram, áfram), var einkunnarorð hans; og áfram hélt
hann til Indlandseyja, til Japan, í von um að komast alla leið
til Kína. Og 1552 sá hann strendur þess, en nokkru síðar dó
hann, án þess að hafa litið inn um »lokuðu dyrnar*. Hrópaði
þá vinur hans Valigani: »Ó, volduga virki! Hve nær verða
hlið þín brotin upp?«.
Hér á ekki við að skrifa langt mál um Franz Xavier.
Kristlundaðri, hugdjarfari og áhugasamari menn en hann hefir
kirkjan fáa átt. Þrátt fyrir að starfstími hans varð svo skammur,