Eimreiðin - 01.12.1922, Síða 63
EIMREIÐIN
SÆMUNDUR FRÓÐI
319
Irygt en flest annað, því að öll gögn vantar til þess að reka það
eða breyta skoðuninni. En enginn hefir notið þess í jafnríkum
mæli og Sæmundur fróði, og á engum hefir sannast jafnvel
og á honum, að þetta getur verið tvíeggjað sverð. Sú frægð,
sem er svo hol innan, getur fengið annað innihald, en til var
stofnað, og verður komið að því síðar. Líklega stendur þetta
> sambandi við það, að um suma af þessum mönnum hefir
verið til saga, rituð eða óskráð, og hún verið kunn, þótt nú
sé löngu týnd og tröllum gefin. En að nokkru leyti stendur
þetta án efa í sambandi við hið alþekta grandaleysi manna,
að eta upp hver eftir öðrum, svo að einn gikkur getur vilt
þúsundum sýn, og mætti gera um það langa sögu.
Skal nú tína saman hið helsta, er vér vitum um Sæmund.
Heimildum ber ekki alveg saman um fæðingarár Sæmundar,
en þó skakkar ekki miklu, og að vísu er hann fæddur skömmu
eftir miðja 11. öldina, líklega árið 1054. Hann er því nokkuð
Yngri en Gizur biskup ísleifsson (f. 1042) og nálega jafnaldri
heilags Jóns biskups Ogmundssonar (f. 1052), en dálítið eldri
en Ari fróði Þorgilsson (f. 1067 eða 68). »Fjarlægðin gerir fjöllin
blá og mennina mikla«, segir Jóhann Sigurjónsson í Fjalla-
Eyvindi, en þó að fjarlægðin hafi breitt yfir þessa menn frægð-
nrbláma sinn, þá má þó hafa það fyrir satt, að varla hafi
bristni þessa lands átt öllu ágætari jafnaldra eða meiri nytja-
nienn að öllu samanlögðu. Fjarlægðin gerir fjöllin blá, en svo
best sjást fjöllin í bláma fjarlægðarinnar, að þau sé sjálf stór
°9 tíguleg og gnæfi hátt yfir holt og hundaþúfur í grendinni,
°9 má alt eins segja um þessa menn, sem gnæfa svo mjög
nliar götur framan úr fornöldinni.
Sæmundur var ágætlega ættaður, bæði í karllegg og kven-
le99- Faðir hans var Sigfús prestur Loðmundarson, en hann
Var kominn í beinan karllegg af Hrafni enurn heimska, Iand-
namsmanni, en hann rakti aftur ætt sína til Haralds hildi-
,annar, konungs, sem menn reyndar eru nú ekki alveg vissir
Uln að hafi nokkru sinni til verið. En hvort sem hann var nú
boniinn af Haraldi hilditönn eða öðrum jafnágætum, þá er
bað víst, að Landnáma telur hann meðal þeirra, sem göfug-
astir hafi numið land í Sunnlendingafjórðungi, en það er
s°nmin þess, að hann hefir verið ágætur höfðingi, þrátt fyrir