Eimreiðin - 01.10.1925, Blaðsíða 36
320 NVJAR UPPGÖTVANIR eimreidiN
Annars þektu menn breytilegar stjörnur áður. Það hefur
þannig verið sannað, að sólin taki í sífellu nokkrum stærðar-
breytingum. Þessar breytingar eru svo litlar, að mjög nákvæm
áhöld þarf til að sýna fram á, að þær eigi sér stað. En talið
er víst, að ljósmagn sólarinnar sé sífeldum breytingum háð-
'Fylgjast þær breytingar eðlilega í réttum hlutföllum á við
stærðarbreytingarnar og standa í nánu sambandi við sólblett-
ina svokölluðu, þótt ekki sé enn Ijóst, hvernig því sambandi
er varið. Þessar stærðar- og ljósmagnsbreytingar sólarinnaf
hafa áhrif á veðráttuna hér á jörð, og halda sumir, að með
vaxandi þekkingu á þeim verði unt að segja nákvæmleS3
fyrir um veðráttu heila mánuði eða jafnvel ár. Eru rannsóknif
þessar því mjög mikilvægar fyrir veðurfræðina.
Menn hafa veitt þvi eftirtekt, við rannsóknir sínar á breyt"
ingum ljósmagnsins í sólargeislunum, að mestu breytingarnar
verða á bláu og fjólubláu geislunum, og þó einna mest a
þeim geislum litrófsins utan við fjólubláu geislana, sem kall'
aðir eru »ultra«-fjólubláir, en þeir geislar sjást ekki með
berum augum. Nú er það kunnugt, að »ultra«-fjólubláu geisl-
arnir hafa mikil áhrif á alt lifandi efni. Þeir geta drepið sótt-
kveikjur, og með þeim er hægt að lækna beinkröm og ýmsa
aðra sjúkdóma. Það eru enn fremur áhrif þessara geisla, sem
valda sólbruna.
Út frá þessum staðreyndum hafa menn tekið að álykta, a^
frá ljósmagnsbreytingum »ultra«-fjólubláu geislanna stafi ýmsar
breytingar á heilsufari manna. Eins og flestir hafa veitt efW'
tekt fer heilsufar manna mjög eftir árstíðum og veðrátím
Væru nógu glöggar skýrslur til um heilsufar manna, mundi
það koma í ljós, að það breytist í sífellu, svo að segja daS'
lega. Suma daga virðast allir glaðir og ánægðir. Aðra daSa
er eins og hvíli eitthvert farg á mönnum. Allir kannast við
þá trú, sem mjög er útbreidd hér á landi, einkum meðal eldra
fólks, að veðrið hafi mikil áhrif á líðanina. Gigtarköst og aðnr
kvillar boða veðrabreytingar. Gigtin hleypur í bakið, þeSar
hann kemst á norðan, segja gömlu mennirnir. Nú eru ýms>r
vísindamenn þeirrar skoðunar, að hér ætli alþýðutrúin a^
reynast rétt eins og oftar, og að það séu einkum þessar áðm"