Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1925, Síða 88

Eimreiðin - 01.10.1925, Síða 88
372 HVAÐ ÆTLI BISKUP SEGI? eimreiðin ung stúlka með blæju fyrir andliti. Þau gengu í kirkju og tóku sér sæti í krókbekk án þess mikið bæri á. Þetta var síðasta ræðan, sem Calvin hélt í þeirri kirkju, og hann hreif áheyrendurna meira en hann hafði gert nokkurn tíma áður. Þeir fengu ósvikna ofanígjöf. En þessi óvanalegi ákafi í prestinum staðfesti enn betur þann grun áheyrend- anna, að hann hefði slæma samvizku. Að ræðunni lokinni tautaði gildi maðurinn í krókbekknum- »Þetta var ósvikin ræða«. Stúlkan greip hönd hans og þrýsti hana. Augu hennar ljómuðu. Svo stóðu þau á fætur og fóru. Þau voru komin út áður en Calvin blessaði yfir söfnuðinn og heyrðu því ekki, þegar hann sagði úr ræðustólnum: »Eg segi af mér prestsembættinu hér við kirkjuna«. Við þessi orð varð ys og þys um alla kirkjuna, en Calv*n snerist á hæli og hvarf ofan úr prédikunarstólnum. Svo gi"elP hann hatt sinn í skyndi og fór út um'bakdyrnar og hélt rak- leitt heimleiðis. Honum var létt um hjartað. Loksins var hann frjáls maður. í hjarta sínu þráði hann að vinna fyrir go11 málefni og láta til sín taka, en hann fann, að í þessum söfn- uði gat hann ekki unnið lengur. Þegar hann nálgaðist prestsetrið, sá hann stóran og lura' legan mann standa á tröppunum. Það var biskupinn. Calv'11 vísaði honum inn á skrifstofuna. »Ég skal ekki tefja yður lengi, drengur minn«, sagði biskup rólega um leið og hann fékk sér sæti. »Hvað á allur þesSl gauragangur hér að þýða?« Hann leit hvast á prest. »Þér hafið víst þegar fengið fréttirnar«, svaraði Calvn1 stuttur í spuna. »Ég varð sekur um óvarkárni, en ég hef ekki framið neitt rangt, eins og ég hef verið kærður um4- Hann þagnaði og rétti úr sér. Svo hélt hann áfram: »Ég hef verið hér prestur í eitt ár, herra minn, og alla’1 þann tíma hef ég verið lítilfjörlegur oddborgari, í engu beti'1 en fólkið, sem ég hef átt að leiða. Ég get ekkert gagn gert hér lengur. Sannleikurinn er sá, að ég hef sagt upp starfinu*- Biskup horfði niður á stígvélin sín. »]æja«, sagði hann> »ég hlustaði nú á ræðuna yðar áðan, og það var enginn oddborgarablær á henni, fanst mér. Hún var ágæt, — kon1 beint frá hjartanu«.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.