Eimreiðin - 01.10.1939, Side 11
EIMREIÐIN
LEYNDARDÓMURINN
355
hafa notað skortinn á sögulegura heimildum sem sönnun fyrir
þessari staðhæfingu. Ég svara því til, að sá skortur bendir að-
ems á hve óþektur hann var og að engin stórfeld andleg hreyf-
lng, eins og kristindómurinn er, geti fram komið og gerbreytt
heiminum, nema að voldugur persónuleiki standi að henni og
knýi hana fram. Engin orsök hefur enga afleiðingu. Sérhver
°rsök hefur einhverja afleiðingu. Kristna trúin er afleiðing af
starfi Jesú hér á jörð, eftir skírn hans. Ég veit ineð vissu, að
Jesús lifði hér og starfaði. Hann var í senn guðdómleg vera og
niaður, sem flutti samtíð sinni háleit sannindi án allrar vægðar
°g varð að gjalda fyrir þetta hugrekki sitt með því að láta lífið á
krossi.
Annars gætir hins fáránlegasta misskilnings hér á Vesturlönd-
lnn um þær verur, hvort sem lifað hafa í nútíð eða fortíð, sem
Aer nefnum ýmist meistara, snillinga, fræðara, helga menn eða
Jafnvel sendiboða af himnum. í Austurlöndum er litið svo á, að
enginn fái skilið meistara aðrir en meistarar. Aðrir hafa engan
mselikvarða til að dæma eftir. Þeir einu, sem vér vitum um, eru
lleir, sem eru horfnir og heyra sögunni til. Vér þekkjum enga
1111 tt á meðal vor og höfum því ekkert til að miða við. Sumir
halda að sá sé meistari, sem leiti burt og feli sig fyrir mönn-
Urtl> 1 helli eða skógarþykni eða þá í einhverju klaustrinu, og
if'i þar í órofa hugleiðslu. Aðrir halda að meistari sé maður,
sein geti gert furðuleg kraftaverk, t. d. breytt vatni i vín, aðeins
lneð snertingunni, brejdt blýi í gull eða læknað sjúka. Aðrir,
einkum i Austurlöndum, halda að hann sé maður, sem sjái
°°rðna hluti, einskonar spámaður, upptendraður af innra ljósi.
Alt eru þetta hugmyndir, en ekki þekking. Sama er að segja
nin þá, sem þykjast vera að sanna, að Jesús hafi aldrei lifað
hér á jörð. Skraf þeirra og skrif er með öllu árangurslaust af
þ'í viðfangsefnið er ofvaxið þekkingu þeirra og reynslu. Þeir
deta aðeins haldið fram tilgátum, en aldrei vissu.
^agnfræðingar á vorum tímum taka ekkert trúanlegt án
rannsóknar, og þeir hafa varpað rannsóknarljósi sínu á þetta
]öngu liðna tímabil helgisagna og horfinna undra-atburða,
en árangurinn hefur eldti svarað til fyrirhafnarinnar. — Oss
01 kent, að hugsjónirnar séu til alls fyrstar. En hugsjónir
^erða að eiga sér upptök, þær verða að hafa birzt skýrt og