Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1939, Side 30

Eimreiðin - 01.10.1939, Side 30
374 DRAUMARNIR RÆTAST eimreiðin Er á leið nóttina slotaði veðrinu, og þegar menn næsta morgun í birtingu fóru á stjá, var veðrið orðið skaplegt. En sú sjón, er blasti við, var hin ömurlegasta. Um alt þorpið mátti sjá spýtnasprek og bárujárnsplötur úr brotnum og sködduðum lnisum. Og i fjörunni lá fjöldi brotinna báta. Á legunni var nú ekkert að sjá. Kútterinn hafði einnig orðið veðrinu að hráð. En hann var hvergi að sjá i fjörunni. Hafði hann sokkið? Nei, er betur var að gáð, sást skrokkurinn uppi i klettunum úti undir höfða. Þórður Jónsson gekk út eftir, til að athuga skipið. Það var mikið brotið, og mundi taka langan tíma að gera við það. Ýmislegt lauslegt, sem verið hafði um borð, var með öllu tapað, hafði tekið út með útsoginu. Það var þögult yfir kvöldborðinu hjá Þórði þetta kvöld. Það var eins og þessi síðasta ógæfa fjölskyldunnar legðist eins og skuggi yfir meðlimi hennar og varnaði þeim að láta hugsanir sínar í Ijós. Það var ekkert hægt að segja, sem bætti skaðann eða lífgaði nýjar vonir. Valur reis fljótt upp frá borðum og gékk upp á herbergi sitt. Er þangað kom kveikti hann sér í sígarettu og lagðist upp í legubekkinn. Að þetta skyldi einmitt þurfa að koma fyrir nú. Nú, þegai' draumar hans voru loksins að rætast. Hann var svo til ferð- húinn, ætlaði fyrst til Reykjavikur, og svo á listaskóla er- lendis, þar sem honum hafði verið útvegað pláss. Og einmitt nú þurfti þessi ógæfa að dynja yfir, eins og til að skyggja á gleði hans. Það heyrðist þungt fótatak í stigan- úm, sem siðan færðist inn ganginn að herbergisdyrum Vals. Dyrnar voru opnaðar hægt, og Þórður, faðir Vals, gekk inn fyrir þröskuldinn. — Þú ert einn liér. — Hann leit yfir herbergið. Svipurinn var alvarlegur og eins og hálfvandræðalegur. — Mig langaði til að tala við þig nokkur orð —. Hann lét aftur hurðina, og Valur settist upp. Þórður gekk inn gólfið og settist á stól- Hann ræskti sig og starði út í herbergið. Það var eins og hann ætti bágt með að hefja máls á því, er hann ætlaði. Valur slo öskuna af sigarettunni og velti henni milli fingranna. Þórður ræskti sig aftur. — Já, þú veizt nú hvað skeð hefur,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.