Eimreiðin - 01.10.1939, Blaðsíða 15
eimreiðin
LEYNDARDÓMURINN
359
búningstími. Iiann varð að finna sjálfan sig, eins og vér öll
verðum að gera fyr eða síðar.
Enginn guð né goðborin vera getur tekið sér bústað í holdi
og klæðst mannlegum likama nema að ganga um leið í gegn-
uni þær þjáningar og takmarkanir, sem fylgir ferli hvers barns
frá fæðingu til fullorðinsaldurs. Lögmál náttúrunnar eru ó-
sveigjanleg. Eina leiðin, sem slík goðborin vera getur farið,
til þess að komast hjá þessum ferli, er að taka sér bústað í
líkama fullþroska manns, en slíkt gerist aðeins undir mjög
fágætum kringumstæðum, þar sem slíkur líkami hefur sér-
staklega verið undirbúinn af einhverri háleitri veru.
Kristseðlið verður að vaxa og þroskast. Það verður aldrei til
án undirbúnings. Þeir, sem það hafa öðlast, eru hinir full-
komnu máttarviðir mannkynsins. Hver venjuleg mannleg vera
verður að evða um tuttugu fyrstu árum ævinnar til þess að
búa sig undir fullorðinsárin. Er þá nokkur furða þó að
Kristur kæmi ekki opinberlega fram fyr en hann var þrítugur
að aldri? Hann þurfti að undirbúa hinn guðdómlega anda sinn
°g samlaga hann jarðneskum skilyrðum, og það hlaut að taka
Rieira en venjulegan tíma.
Enginn, sem kemur eins og Jesús hingað til vor sem sendi-
koði, til að hjálpa mannkyninu og einkum almúganum, hefði
getað farið öðruvísi að en hann gerði. Hann verður að kynnast
jarðlífinu eins og það er, verður að lifa sína bernsku og æsku
eins og aðrir, læra að skilja líf þeirra, sem erfiði og þunga eru
hlaðnir, fæðast og vaxa upp mitt á meðal þeirra fátæku og
smáu. —
Hann óx örar að vizku en aðrir menn, svo ört, að undir eins
a barnsaldri tók hann að íhuga og kryfja til mergjar, leita og
oðlast skilning á andlegum verðmætum lífsins. Hann kemur
harn að aldri í musteri Gyðinganna og gerir prestana og fræði-
niennina þar orðlausa ineð andagift sinni og innsæi. En hann
hafði ekki fundið sjálfan sig.
Það var ekki fyr en hann var kominn á fjórtánda ár, að
hann sá að hann varð að leggja út í heiminn til að leita síns
haleita hlutverks og öðlast fullan skilning á köllun sinni. Það
er alment talið, að hann hafi horfið með öllu á tímabilinu frá
Wlf til þrjátiu ára aldurs, en þá kemur hann skyndilega aftur