Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1939, Blaðsíða 56

Eimreiðin - 01.10.1939, Blaðsíða 56
400 SKULDASIvIL EIMREIÐIN' ur að. En eitt kunni ég þó illa við. Hann kallaði mig altaf Önnu síðustu dagana, sem hann lifði. . — Af hverju heldurðu að hann hafi kallað mig Önnu, þegar ég heiti Hrefna. Það eru þó ekki lík nöfn, — finst þér það? — Nei, sagði Anna. — Ég veit, að þú skilur það ekki heldur, þó að þú sért fín og lærð og eigir bíl. Af þessu er það, að ég get ekki sofið á nóttunni og ekki unnið á daginn. — Dauðinn gelur ekki tekið neitt frá þeim, sem eitthvað eiga. Hann tekur frá hinum, sem ekkert eiga. — Nei, það getur enginn hjálpað mér. Anna leit i kringum sig, eins og eftir einhverju úrræði. Þá kom hún auga á kassann með rósunum, sem hún var alveg búin að gleyma. Hún tók þær upp. •— Sjáðu, Hrefna, sagði hún. Hérna eru þrjá rósir. Það er svo mikil mold með rótunum að þær koma undir eins til. — Viltu nú ekki þiggja þær af mér til þess að láta á leiðið? Stúlkan leit spyrjandi á hana. — Blómstra þær hérna úti? spurði hún svo. — Já, þær blómstra hérna úti, sagði Anna. Ein er hvít og tvær eru rauðar. — Hvítar og rauðar rósir, endurtók Hrefna, hvað eftir annað, og það hýrnaði yfir henni. Svo varð hún aftur kulda- leg á svipinn og sagði: — Ég skil ekki, af hverju þú ert að gefa mér rósir. Hvað viltu fá í staðinn? — Ég vil ekkert fá í staðinn, sagði Anna. Gerðu það nú fyrir mig að taka við rósunum og lofaðu mér að hjálpa þér. — Þú gefur mér rósirnar og ’S’ilt ekkert fá í staðinn. Það var merkilegt. Anna eyddi nú ekki fleiri orðum. Hún lagaði moldina á leið- inu. Svo fekk hún stúlkunni rósirnar og hjálpaði lienni að gróðursetja þær. —• Þú gefur mér rósirnar, sagði hún þá, en ekki honum? — Því ættir þú líka að gefa honum rósir? Samt er eitthvað í þessu, sem ég skil ekki. Ég skil það kannske betur seinna. — Auðvitað gef ég þér rósirnar, sagði Anna, og það var ekki laust við óstyrk í röddinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.