Eimreiðin - 01.10.1939, Síða 21
eimreiðin
LEYNDARDÓMURINN
365
hlýddu á boðskap Jesú, snerust ekki til fylgis við hann, og
margir vildu það eldd. En til þess að finna hina fáu, varð hann
að tala til fjöldans. Þess vegna birtist hann og prédikaði meðal
lýðsins.
Vér þörfnumst fræðara, en þó miklu fremur spámanna, sem
fylla oss innblæstri. Vér þörfnumst manna, „sem fá oss til
að framkvæma það bezta, sem í oss býr“, eins og Emerson
komst að orði. Gef oss slíkan, og vér munum fylgja honum.
Lát hann flvtja oss liinn aldagamla boðskap guðs, og um fram
alt, lát hann fylla oss heilögum anda og krafti.
Jesús vissi þegar frá upphafi hver nivndu verða endalok sin.
Hann vissi, að hann myndi verða krossfestur, að það væru
örlög sín. En slíkur er máttur hins guðdómlega kærleika, að
þrátt fyrir þetta leitar Jesús þeirra fáu, sem séu færir um að
bera uppi boðskap hans og halda áfram starfi hans, eftir að
hann er fallinn frá — og finnur þá. Slíkt er að þjóna mann-
kyninu, hvort sem gert er opinberlega eða í kyrþey, og þess
Vegna gengur Jesús um kring og kennir án afláts meðal þeirra,
sem hann vissi að myndu síðar launa sér með lífláti á krossi.
En hver einasti nagli, sem rekinn var í líkama hans á kross-
lnum, var um leið nýr hlekkur í hinni bölvænu örlagakeðju
Þeirra, sem að því lífláti stóðu.
Hvert var þá verk hans? Á þrem árum, áður en hann var
tekinn af lífi, vinnur hann þetta verk. sem hann kom til að
vmna. Verkið var ekki það, sem flestir kristnir menn telja.
Hann kom ekki til að grundvalla ný trúarbrögð eða stofna
nýja kirkju. Hann kom til að gróðursetja ósýnilegt frækorn í
hjörtum mannanna, frækorn, sem átti að vaxa, verða að stóru
tré, og breiða lim sitt og lauf víða um lönd. En eins og öll
oruuir tré og jurtir átti það fyrir sér að vaxa, blómgast og
hcra ávöxt um hríð og hrörna síðan að lokum. Jesús stofnaði
enga trúarlega félagsheild, enga kirkju. Hann ráðlagði fylgj-
endum sinum að biðjast fyrir í einrúmi, ekki í kirkjum. Hann
utnefndi enga klerkastétt, enga presta. ÖIl hin kirkjulega bygg-
lng kristninnar var reist af öðrum.
Hað, sem Jesús flutti heiminum, er nú i deiglu hrörnunar-
mnar. -— Það, sem hann flutti mannkyninu, varir eilíflega.
En það verður ekki með höndum snert eða með augum skynj-