Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1939, Page 40

Eimreiðin - 01.10.1939, Page 40
384 LÝÐHÁSKÓLARNIR í DANMÖRKU eimreiðin heimkynnin hefðu til að framleiða góða efniviði. Alþjóðlegur skóli varð meira að beita huganum út á við en inn á við. Það sem maður sér út á við, er auðvitað fyrst og fremst það, sem liggur á yfirborðinu, verklegar framkvæmdir, fjárhagsmál og þessháttar. En það, sem á dýpstar rætur í tilfinningalífinu, sér maður ekki, því það getur maður ekki keypt hjá bóksöl- unum. Og þótt maður komi saman með 18 eða 20 þjóðum í senn, geta flestir aðeins gert sig lítilsháttar skiljanlega á höf- uðmálunum, svo það verður ekki mikið um „alþjóðaborgara- skap“ fyrir þeirra hluta sakir. Reynslan hefur sýnt, að „al- þjóðamenn“ eru ekki til, séð frá sjónarmiði tilfinninganna. Maður getur skapað alþjóðleg (internationnl) verðmæti, eins og t. d. tónlist, myndlist, ljóðlist og annað af sama toga. En það, sem skapaði hin dýrmætustu listaverk, var sem oftast heilagur innblástur frá beztu augnablikuin lífsins í átthög- unum. Alþióða-iýðháskólinn í Helsingjaeyri fékk í fyrstunni sterk- an byr í seglin, einkum meðan trúin á menningarlega þýðingu Þjóðabandalagsins var almennari en nú. Hafa þó af og til verið deilur 1 skólanum, því málin eru misjöfn og sögurnar sundur- leitar. Kenslan hefur á sér mikið snið efnishyggju nútímans og tölvísi. í heild sinni minnir kenslan þar talsvert á þjóðfélags- fræði franska lieimspekingsins Auguste Comte, sem vildi fu alla menn til að hugsa eins, með hjálparineðulum heilans og reynslunnar. Eftir námsskeiðið i Helsingjaeyri gerðist ég tvo vetur nemandi á yfirlýðháskólanum í Askov, sem liggur í nánd við Skipalund, hinn merkilega þjóðmenjareit, þar sem reist voru voldug minnismerki yfir mörg látin mikilmenni. Meðal minnisvarð- anna er stór steinn reistur til minningar um Magnús hinn góða Norvegskonung, sem veitti Dönum lið í bardaganum mótx Vindum árið 1043. Á steinninn að tákna hina fyrstu félagsvörn þjóðanna á Norðurlöndum móti óvinaher. Það er engin til- viljun, að þetta minnismerki er reist í nánd við Askov, þvl sjálfur skólinn er arnarsetur nori-ænnar samheldni og menn- ingar. í rauninni er þessi skóli eftirlíking þess lýðháskóla, sem Grundtvig upphaflega barðist fyrir að yrði gerður úr vís- indaskólanum í Sórey á Sjálandi. Grundtvig skrifar 1840 da-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.