Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Síða 33

Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Síða 33
ÞORIR ÞORISSON Fyrri rannsóknir hafa einnig sýnt að almenningur nú leggur allt aðra merkingu í orðin „klassík" og „rómantík" heldur en þá tónlistarsögulegu (Eastlund 1993). Með því að nota hlutlausu stílheitin „A-stíll" og „B-stíll" freistaði ég þess að eyða rugl- andi áhrifum orðanna klassík og rómantík (þ.e.a.s. þeirri merkingu þeirra sem ekki varðar stílflokkun tónlistar). Þjálfunar- og yfirfærsludæmi (A1-B4, S1-S8 og Y1-Y7) voru valin úr hópi 56 dæma sem forprófuð höfðu verið við kennslu sambærilegra nemenda. Sjö tón- fræðingar notuðu 7-þrepa eiginleikakvarða til að meta hversu greinileg einkenni taktslags, hendingaskipunar, tónvefs, hljómferlis, hraða og styrkleikasviðs allra 56 dæmanna væru.6 Kvarðarnir voru afmarkaðir með orðunum: taktfast - sveigjanlegt (slag), jafnar - ójafnar (hendingar), þunnur - þykkur (vefur), stefnufast - órætt (hljómferli), hægt - hratt (tempó) og hófstilltur - öfgafenginn (tónstyrkur). Meðal- talsmat dómaranna var notað til að ákvarða greinileikastuðul hvers einkennis (svið 0-1) og þurfti greinileiki viðeigandi einkenna að ná 0,6 að lágmarki til að dæmi yrði valið í dæmasöfn A1-B4 og Y1-Y7. Valin voru dæmi sem höfðu sem jafnastan stuðul fyrir alla eiginleika þessara dæma. Varðandi sértekningardæmin S1-S8 þótti hins vegar kostur að eitt einkenni (t.d. þunnur vefur) skæri sig úr á kostnað hinna þar sem hlutverk hvers dæmis var að stuðla að sértekningu á tilteknu einkenni. Þessi dæmi höfðu því háan greinileikastuðul fyrir eitt tiltekið einkenni en miklu lægri fyrir önnur. Þjálfunar- og prófskeið Rannsóknin skiptist í stílhugtakaþjálfun og eftirpróf. í þjálfuninni lærðu báðir til- raunahópar með ágiskun og leiðréttingu að flokka 17 píanódæmi (A1-B4 og S1-S8 í Töflu 2) sem „stíl A" (klassískan) eða „stíl B" (rómantískan) í 16 tilraunum.7 Fékk annar hópurinn (hér eftir nefndur „einkennahópur") leiðbeiningar um dæmigerð stíleinkenni með átta af þjálfunardæmunum 17 (dæmum S1-S8).8 Hinum hópnum (hér eftir nefndur „dæmahópur") voru ekki gefnar neinar upplýsingar um dæmi- gerð stíleinkenni aðrar en þær sem fólust í tónlistinni sjálfri og upplýsingum um flokkun hennar.9 Eftirprófin voru tvö. Hið fyrra mældi stílhugtakamyndun (rétta flokkun dæma) og hið síðara sértekningu stíleinkenna (sveigjanlegt slag, óræða 6 Sex tónfræðinganna höfðu æðri námsgráður í tónlist og kenndu þessar greinar við helstu tónlistarskóla lands- ins. Eiginleikakvarðarnir voru svokallaðir „semantic differential scales". 7 Markmið hverrar „tilraunar" var að sjálfsögðu að flokka öll 17 tóndæmin rétt. Þar sem hvert dæmi var tvítekið heyrðu þeir nemendur, sem gera þurftu 16 tilraunir til að flokka dæmin rétt, hvert tóndæmi 32 sinnum á tæpum fjórum vikum. 8 Leiðbeiningin var í formi orðskýringar (t.d. „sveigjanlegt slag") sem tilkynnt var og varpað á tjald á meðan dæmið var leikið. Ein slík skýring á áberandi einkenni fylgdi hverju hinna átta dæma (S1-S8) við sérhverja til- raun. Einkennahópurinn lærði þannig að tengja fjögur dæmigerð einkenni hvorum stíl: Taktfast slag, jafnar hendingar, þunnan vef og stefnufast hljómferli hinum klassíska, og sveigjanlegt slag, ójafnar hendingar, þykkan vef og órætt hljómferli þeim rómantíska. Örvun sértekningar þessa hóps á dæmigerðum stíleinkenn- um var því viðbót við dæmakennslu. 9 Spurningin var, hvort orðskýringar með dæmum S1-S8 kæmu einkennahópnum að gagni við að læra rétta flokkun þjálfunardæma A1-B4 og yfirfærsludæma Y1-Y7, en hvert dæmi (að frumgerðunum B4 og Y3 undan- skildum) hafði mismargar undantekningar frá frumgerðinni - og á hinn bóginn hve vel dæmahópnum gengi að mynda hugtökin án slíkra orðskýringa. 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.