Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Blaðsíða 25
ÞÓRIR ÞÓRISSON
AÐ GREINA
MOZART FRÁ MENDELSSOHN
Myndun hugtaka um stíl í tónlist
Sálfræðikenningar um myndun illa afmarkaðra hugtaka (sambærilegra við stíla í tónlist)
gera ýmist ráð fyrir að slík hugtök byggist á sérteknum einkennum eða á dæmum sem lögð
hafa verið á minnið. Hér er sagt frá áhrifum pess á hæfni framhaldsskólanema til að greina
stíltegundir í tónlist að sundurgreina stíleinkenni eftir fjórum eiginleikum tónlistar (slagi,
hendingaskipan, þykkt tónvefjar og hljómferli) í samanburði við árangur dæmanáms ein-
göngu. Einnig var kannað hver pessara fjögurra eiginleika hefði mest áhrif á stílflokkun
nemendanna. Meginniðurstöður voru pær að framhaldsskólanemar gætu að jafnaði nýtt sér
upplýsingar um dæmigerð stíleinkenni, prátt fyrir tíðar undantekningar dæma frá hverju
einstöku sérkenni. Þó fundust merki pess að upplýsingar um dæmigerð stíleinkenni yllu
ruglingi vegna óskýrleika hugtakanna. Nemendur byggðu stílflokkun sína mest á pykkt
tónvefsins, hljómferli var peim einnig mikilvæg vísbending en eiginleikar slags og hend-
ingaskipunar höfðu miklu minni áhrif. Breytileiki tónvefs eftir stíl var jafnframt eina ein-
kennið sem nemendur sértóku af sjálfsdáðum, byggt á reynslu sinni af tóndæmunum og
upplýsingum um flokkun peirra. Að lokum er fjallað um hvað leggja parf sérstaka áherslu á
ístílkennslu miðað við pessar niðurstöður.'
Læsi á sögulega stílþróun tónlistar hefur löngum talist mikilvægt markmið í tón-
menntun almennings og er svo enn.* 1 Hæfileiki fólks til að mynda hugtök um mis-
munandi stíla í tónlist er ótvíræður og virðist stíllæsi eitt af því sem glætt getur
áhuga almennings á tónlist. Tónlistarmönnum jafnt sem áhugafólki er þó ljóst, að
því fer fjarri að flokkun tónlistar undir einn stíl fremur en annan (t.d. klassískan
fremur en rómantískan) sé ávallt augljós og ótvíræð, enda stílhugtök þeirrar gerðar
sem sálfræðingar hafa nefnt illa afmörkuð. Með illa afmörkuðum hugtökum er átt
við að frá sérhverri flokkunarvísbendingu séu fjölmargar undantekningar. Umdeilt
er hvernig fólk myndar slík hugtök, og álitamál hvernig þau verða best kennd eða
þjálfuð, eins og nánar verður vikið að síðar.
Þrátt fyrir óskýrleika stílhugtaka í tónlist eru þau oft þjálfuð eins og um skýrt
afmörkuð og ótvíræð hugtök væri að ræða. Nemendum er gefin samantekt á dæmi-
* Rannsóknin sem greinin byggist á var styrkt af Vísindasjóði íslands, hug- og félagsvísindadeild. Höfundur vill
þakka þeim sjö tónfræðingum sem lögðu mat á eiginleika tóndæmanna, sér í lagi Snorra Sigfúsi Birgissyni sem
veitti ómetanlega aðstoð við val dæmanna. Einnig eiga þakkir skildar nemendur í tónmenntaráföngum
Fjölbrautaskólans í Breiðholti á vorönn 1995, sem af samviskusemi flokkuðu sömu 17 tóndæmin 16 sinnum án
vitundar um hinn dularfulla tilgang. Loks eru umsagnaraöilum á vegum ritstjórnar og ónefndum tónlistar-
kennurum þakkaðar gagnlegar ábendingar.
1 Sjá t.d. Aðalnámskrá grunnskóla 1989:162, Aðalnámskrá tónlistarskóla 1996:13, National Standards for Arts Education
1994:29, 63.
Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 5. árg. 1996
23