Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Blaðsíða 34
AÐ GREINA MOZART FRÁ MENDELSSOHN
hljóma o.s.frv.). Hér á eftir verður hverjum þessara þátta lýst nánar (sjá einnig yfir-
lit í Töflu 4), en fyrst skal greint frá skýringum sem gefnar voru einkennahópi áður
en stílhugtakaþjálfunin sjálf hófst.
Orðskýringar til einkennahóps. í ljósi þess hve formleg tónmenntun nemendanna
var lítil þótti óvarlegt að treysta því að þeir hefðu skilning á þeim átta lýsingum á
dæmigerðum stíleinkennum sem notaðar voru við stílhugtakaþjálfun einkenna-
hópsins (óræðir hljómar, jafnar hendingar o.s.frv.). Því var merking þessara undir-
hugtaka útskýrð með orðum, tóndæmum og myndmáli fyrir nemendum þessa
hóps áður en rannsóknin hófst. Notast var við þjóðlög og rokktónlist við þessar
skýringar í stað klassískrar og rómantískrar tónlistar til að koma í veg fyrir að
þessir nemendur fengju forskot á dæmahópinn hvað varðaði reynslu af klassískum
og rómantískum tónstílum. Skrifleg könnun í lok þessarar kennslu benti eindregið
til að nemendur hefðu skilið hugtökin. Það skal áréttað að þeim var þó aldrei sagt
beinum orðum hver af einkennunum væru talin einkenna stíl A og hver stíl B. Eins
og venja er í hugtakarannsóknum af þessu tagi (sjá t.d. Bower og Clapper 1989:
273-275) áttu nemendur beggja hópa að uppgötva sjálfir með ágiskunum og leið-
réttingum hvaða stíleinkenni ættu við hvorn stílinn A eða B. Með öðrum orðum
mynduðu þeir hugtökin sjálfir á grundvelli mismunandi upplýsinga.10
Stílhugtakaþjálfunin. í byrjun var nemendum beggja hópa sagt að þeir ættu í
næstu átta kennslustundum að læra að greina rétt tvo mismunandi stíla í tónlist. Til
þess fengju þeir að heyra oft sömu 17 píanódæmin og ættu þeir að læra hver þeirra
tilheyrðu stíl A og hver stíl B. Síðan var eftirfarandi fyrirmælum, sem prentuð voru
á svarblöð nemenda, varpað á tjald og lesin:
Fyrst verðið pið bara að giska á í hvorum stílnum hvert dæmi er. Þegar þið eruð
búin að skrifa ágiskun ykkar á svarblaðið þá gef ég ykkur upp rétta svarið og leyfi
ykkur að heyra dæmið aftur. Skrifið rétta svarið í seinni dálkinn (hvort sem ykkar
svar var rétt eða rangt) án þess að breyta fyrri ágiskun. Þannig munuð þið
fljótlega uppgötva hvaða dæmi og einkenni tilheyra hverjum stíl. Reynið að læra
almenn einkenni hvors stíls þannig að þið getið síðar flokkað rétt ný dæmi sem þið
hafið ekki heyrt áður. Öll A-dæmin hafa einhver sameiginleg einkenni. Ekkert eitt
einkenni er þó óbrigðul vísbending um stílinn, það satna gildir um B-dæmin.
Markmiðið er að allir læri sem fyrst að flokka öll dæmin rétt - síðan kemur próf.
Fyrir utan nánari leiðbeiningar um útfyllingu svarblaðsins og fyrirlagningu dæm-
anna voru þetta einu fyrirmælin til dæmahópsins, sem byrjaði strax að læra að
flokka þjálfunardæmin 17. Við fyrirmæli einkennahópsins var hins vegar bætt:
Til að þið lærið betur hvað almennt einkennir hvorn stíl, gefég ykkur upp áberandi
einkenni vissra dæma (t.d. sveigjanlegt slag) um leið og þið hlustið á þau og giskið
á stílinn. Þar sem þið fáið alltaf rétta svarið eftir hverja ágiskun munuð þið fljót-
lega uppgötva hvaða einkenni tilheyra hverjum stíl.
Að öðru leyti en hér hefur verið lýst fór þjálfunin eins fram í báðum hópum. Ein
tilraun fór fram við upphaf og önnur við lok hverrar 80 mínútna kennslustundar,
10 Eingöngu tónlistarlegra upplýsinga í dæmahópi, en bæði tónlistar- og munnlegra upplýsinga í einkennahópi.
32