Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 48

Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 48
TÓBAKSREYKINGAR OG HASSNEYSLA Framkvæmd og mælitæki Spurningalisti um neyslu ýmissa vímuefna, þ.á m. tóbaksreykingar, hassneyslu og viðhorf til neyslu þessara efna, var lagður fyrir unglingana á skólatíma. Könnunin fór fram í fyrra skiptið í mars 1994 og aftur í janúar 1995. Spurningalistinn byggir á kvarða sem notaður er í samvinnuverkefni Evrópulanda en við hönnun hans hefur í ríkum mæli verið sótt í smiðju Bandaríkjamanna (Þóroddur Bjarnason 1994). Stéttarstaða var metin með tilliti til starfs og menntunar bæði móður og föður. Notaður var sexskiptur stéttakvarði sem byggir á kvarða Hollingshead (1975). Þegar munur kom fram á stéttarstöðu móður og föður var tekið mið af hærri flokki samkvæmt kvarðanum. Unglingarnir voru spurðir hjá hverjum þeir byggju. Gefnir voru upp sjö kostir: bý hjá 1) móður og föður (1994: 70,7%; 1995: 72,2%), 2) móður og sambýlismanni (1994: 12,0%; 1995: 10,4%), 3) föður og sambýliskonu (1994: 1,5%; 1995: 1,7%), 4) móður (1994:12,5%; 1995:12,3%), 5) föður (1994:1,6%; 1995:1,6%), 6) á eigin vegum (1994: 0,0%; 1995: 0,1%) eða 7) annað fyrirkomulag (1994: 1,7%; 1995: 1,7%). í út- reikningum var einungis tekið mið af þeim sem bjuggu hjá móður og föður, móður og sambýlismanni eða móður, þar sem svo fáir reyndust búa við hinar fjölskyldu- gerðirnar. NIÐURSTÖÐUR Hér verður fyrst gerð grein fyrir niðurstöðum um tóbaksreykingar unglinga en síðan um hassneyslu þeirra og loks verður fjallað um tengsl á milli tóbaksreykinga, hassneyslu og áfengisneyslu. Tóbaksreykingar reykvískra unglinga Athugað var hlutfall þeirra unglinga sem höfðu prófað að reykja sígarettur og þeirra sem litu svo á að þeir reyktu. Einnig var skoðað hve mikið unglingarnir reyktu á dag og hver upphafsaldur reykinga var að jafnaði. Greint er frá viðhorfum þeirra til reykinga og loks er fjallað um hvernig reykingar foreldra og vina tengdust þeirra eigin reykingum. Ekki kom fram munur á reykingum unglinganna eftir stéttarstöðu foreldra þeirra. Ahrif fjölskyldugerðar reyndust ekki heldur skipta verulegu máli en þeirra er getið nánar hér á eftir. Kynbundinn munur kom víða fram og er hans getið þegar hann var marktækur. Fjöldi unglinga sem reykir og þeir sem ekki reykja Unglingarnir voru spurðir hvort og þá hve oft þeir höfðu prófað að reykja sígarett- ur. Eins og sjá má í Töflu 1 sögðust ríflega 60% unglinganna í 9. bekk annaðhvort aldrei hafa prófað að reykja eða að þeir hefðu prófað það í 1-2 skipti á ævinni. Um fjórðungur þeirra sagðist hafa reykt tíu sinnum eða oftar. Ári síðar, í 10. bekk, sagðist rúmlega helmingur þeirra annaðhvort aldrei hafa prófað að reykja eða hafa prófað það í 1-2 skipti. Rúmur þriðjungur hafði reykt tíu sinnum eða oftar. 46
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.