Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 57

Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 57
SIGRÚN AÐALBJARNARDÓTTIR, KRISTJANA BLÖNDAL Tafla 8 Fylgni á milli reykinga, áfengisneyslu og hassneyslu 9. bekkur 10. bekkur Reykingar Hassneysla Reykingar Hassneysla Áfengisneysla Reykingar ‘p< 0,0001. 0,72* 0,35* 0,33* 0,68* 0,39* 0,45* hverju (0,51, p<0,001) og c) reyki hass reglulega (0,40, p<0,001). Sem dæmi má taka að 90% þeirra unglinga í 9. bekk, sem aldrei höfðu sjálfir reykt hass, voru mjög á móti því að fólk prófaði að reykja hass samanborið við 24% þeirra sem sjálfir höfðu prófað hass (%2(2)=204,5, p<0,001). Svipuð niðurstaða fékkst þegar unglingarnir voru komnir í 10. bekk: 88% þeirra, sem aldrei höfðu reykt hass, voru mjög á móti því að fólk prófaði að reykja hass samanborið við 29% þeirra sem sjálfir höfðu prófað að reykja hass (%2(2)=278, p<0,001). Tengsl á milli áfengisneyslu, tóbaksreykinga og hassneyslu í Töflu 8 má sjá fylgni á milli áfengisneyslu, tóbaksreykinga og hassneyslu ungling- anna, bæði þegar þeir voru í 9. og 10. bekk. Við fylgniútreikninga var miðað við spurningu um hve oft á síðastliðnu ári unglingarnir hefðu neytt áfengis eða reykt sígarettur og hvort þeir hefðu prófað hass eða ekki. Eins og Tafla 8 gefur til kynna voru sterk tengsl á milli tóbaksreykinga og áfengis- neysln unglinganna, sem þýðir að því oftar sem unglingarnir höfðu reykt á síðast- liðnu ári þeim mun oftar höfðu þeir drukkið á sama tímabili. Sem dæmi um tengsl reykinga og áfengisneyslu má nefna að 98,2% af þeim, sem reyktu að staðaldri, sögðust drekka í 9. bekk, en 37,7% af þeim, sem ekki reyktu, sögðust drekka (X2(l)=269,l, p<0,001). Svipaða sögu er að segja þegar þeir voru komnir í 10. bekk: 96,2% á móti 53,7% (x2(l)=141,6, p<0,001). Eins og sjá má í Töflu 8 komu einnig fram tengsl á milli reykinga á sígarettum og hassi. Því oftar sem unglingarnir höfðu reykt á síðastliðnu ári þeim mun líklegra var að þeir hefðu prófað hass. Sem dæmi um þessi tengsl má nefna að af þeim sem reyktu að staðaldri í 9. bekk sögðust 20,1% hafa prófað hass, en 1,1% þeirra sem reyktu ekki (x2(l)=156,2, p<0,001), og í 10. bekk 40,9% á móti 3,4% (x2(l)=247,5, p<0,001). Töluverður hluti þeirra sem reyktu hafði því prófað hass. Af þeim sem sögðust drekka í 9. bekk og reykja jafnframt sígarettur að staðaldri höfðu 7,2% prófað hass, en 1,3% þeirra sem drukku en reyktu ekki sígarettur (x2(l)= 59,2, p<0,001). Ári síðar nam þetta hlutfall 14% á móti 4,3% (x2(l)=116,7, p<0,001). 55
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.