Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 36
34
Árbók Háskóla íslands
Rannsóknastofa í lífeðlisfræði
Starfsmenn
Starfsmenn rannsóknastofu í lífeðlis-
fræði sjá um kennslu í lífeðlisfræði í lækna-
deild, námsbraut í hjúkrunarfræði, líf-
fræðiskor, tannlæknadeild, námsbraut í
sjúkraþjálfun og félagsvísindadeild. Auk
þess hafa þeir tekið að sér kennslu í lífeðlis-
fræði við Nýja hjúkrunarskólann og
Tækniskóla íslands.
Á því tímabili sem hér um ræðir (1982-
1986) urðu talsverðar breytingar á starfsliði
stofnunarinnar.
Jón Grétar Óskarsson, B.Sc., sem auk
kennslu gegndi störfum sérfræðings í lífeðl-
isfræði mannsins, lést vorið 1985.
Eftirtaldir starfsmenn, sem höfðu
kennslu og rannsóknir að aðalstarfi, fóru
utan til doktorsnáms í greininni: Guðrún
Pétursdóttir, M.Sc., Helgi Thorarensen,
B.S., Jón Ingi Benediktsson, B.S., Jón
Ólafur Skarphéðinsson, B.S., Jón M. Ein-
arsson, B.S., og Þórarinn Sveinsson, B.S.
Guðmundur Einarsson, lektor við
læknadeild, fékk leyfi frá störfum að hluta
frá og með maí 1983 vegna starfa á Alþingi
og sagði starfi sínu lausu í júní 1986 af sömu
sökum. Sett til að gegna störfum Guð-
mundar voru dr. Stefán B. Sigurðsson og
síðar Kristín Einarsdóttir, cand. real. Krist-
ín gegndi einnig störfum aðjúnkts við
læknadeild og 1/2 starfi sérfræðings í lífeðl-
isfræði blóðrásarkerfisins.
Aðrir fastráðnir kennarar á tímabilinu
voru:
Dr. Jóhann Axelsson prófessor, for-
stöðumaður, StefánJónsson læknir, dósent
með starfsaðstöðu á rannsóknardeild
Borgarspítala, og Logi Jónsson, cand.
real., lektor. Tveir þeir fyrrnefndu eru
starfsmenn læknadeildar, en Logi er ráðinn
að líffræðiskor raunvísindadeildar. Logi
varð dósent í lífeðlisfræði í ársbyrjun 1986.
Dr. Stefán B. Sigurðsson varð lektor í líf-
eðlisfræði við námsbraut í hjúkrunarfræði
árið 1984 og dósent f greininni 1985. Hann
varð svo dósent í læknadeild í árslok 1986.
Björg Þorleifsdóttir gegndi stöðu aðjúnkts
nokkurn tíma og var sett lektor við náms-
braut í hjúkrunarfræði í árslok 1986.
Auk þeirra sem nú eru nefndir hafa eftir-
taldir líffræðingar/lífeðlisfræðingar haft
kennslu og rannsóknir við stofnunina að
aðalstarfi, a.m.k. hluta af ofangreindu
tímabili:
Bjöm Hjálmarsson, stud. med., Guðrún
Narfadóttir, B.S., Kristín Bergsteinsdótt-
ir, B.S., Margrét Sigurðardóttir, B.S., Sig-
urður Magnússon, B.S., dr. Þór Gunnars-
son.
Aðrir sem annast hafa stundakennslu á
vegum rannsóknastofunnar eru:
Árni Þórsson læknir, Ernir Snorrason,
læknir og sálfræðingur, dr. Helga Ög-
mundsdóttir læknir, dr. Helgi Krist-
bjamarson læknir, dr. Hannes Pétursson
læknir, Inger R. Jessen líffræðingur, dr.
Júlíus B. Kristinsson, dr. Kristján R. Jes-
sen taugalífeðlisfræðingur, dr. Laufey
Steingrímsdóttir næringarfræðingur, Páll
Ammendrup læknir, Sigmundur Sigfússon
læknir, Sigurður Björnsson læknir, Sigurð-
ur B. Porsteinsson læknir, Tryggvi Ás-
mundsson læknir, Jóhanna Jóhannesdóttir
rannsóknartæknifræðingur, aðstoðarmað-
ur við rannsóknir.
Rannsóknir á mönnum
Samanburður á íslendingum og Vestur-ís-
lendingum
Vesturfarir íslendinga sköpuðu einstakt
tækifæri til þess að rannsaka áhrif alda-
langrar búsetu í ólíku umhverfi á erfða-
fræðilega sambærilega hópa. í fyrri árbók-
um höfum við skýrt frá undirbúningi og að-