Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 70
68
Árbók Háskóla íslands
Starfsaðstaða
Stofnunin ræður yfir lítilli rannsóknar-
stofu þar sem bókasafn hennar er varðveitt
og nokkrir stúdentar, sem eru langt komnir
í námi, geta unnið. Á árinu 1984 var gert
átak til að skrá ritauka safnsins síðastliðin
ár, en vegna fjárskorts hefur endurnýjun
safnsins verið allt of lítil sfðustu árin.
Á árinu 1985 eignaðist stofnunin rit-
vinnslutölvu, sem er varðveitt í tölvuveri í
Árnagarði og ætluð kennurum og stúdent-
um í sagnfræði. Nú er verið að búa vinnu-
herbergi fastráðinna kennara tölvum, svo
að tölva stofnunarinnar verður framvegis
til ráðstöfunar fyrir stundakennara, aðra
sem taka að sér verk á vegum Sagnfræði-
stofnunar og stúdenta í námsvinnu.
Gunnar Karlsson
Málvísindastofnun Háskóla íslands
Sögubrot
Málvísindastofnun var komið á fót með
reglugerð 1971 og hét þá Rannsóknastofn-
un í norrœnum málvísindum. Á sama tíma
fóru af stað hliðstæðar rannsóknastofnanir
í bókmenntafræði og sagnfræði. Nafni
stofnunarinnar var breytt í Málvísinda-
stofnun Háskóla íslands þegar reglugerð-
um þessara rannsóknastofnana var breytt
1983. Fjárveitingar til Málvísindastofnunar
lágu niðri um nokkurra ára skeið, og á því
tímabili voru auðvitað ekki birtar skýrslur
um starfsemina í Árbók. Stofnunin fékk
fjárveitingu á fjárlögum að nýju fyrir árið
1984, og hefur hún haldist síðan. Fyrir árið
1986 fékk Málvísindastofnun sömu upphæð
á fjárlögum og Bókmenntafræðistofnun og
Sagnfræðistofnun (489 000 kr. á verðlagi í
janúar 1986). Það er allmiklu lægri upphæð
að raungildi en þessar stofnanir fengu á
fyrstu starfsárum sínum.
I stjórn stofnunarinnar hafa jafnan setið
tveir kennarar og einn stúdent. Fyrstu
stjórn stofnunarinnar skipuðu Hreinn
Benediktsson, Baldur Jónsson og Kolbrún
Haraldsdóttir, en hún var fulltrúi stúdenta.
Fyrstu stjórn eftir að stofnunin tók til starfa
á ný skipuðu Höskuldur Þráinsson og Jón
Gunnarsson úr hópi kennara. Þá næstu
Kristján Árnason og Svavar Sigmundsson.
Fulltrúar stúdenta voru Eiríkur Rögn-
valdsson, Áslaug Marinósdóttir, Ari Páll
Kristinsson og Guðvarður Már Gunnlaugs-
son. Núverandi stjórn skipa Höskuldur
Þráinsson, Jón G. Friðjónsson og Jóhann-
es Jóhannsson, en hann er fulltrúi stúd-
enta.
Hlutverk
Samkvæmt reglugerð er hlutverk Mál-
vísindastofnunar m.a. þetta:
1. Stofnunin skal annast grundvallar-
rannsóknir í íslenskum og almennum mál-
vísindum. í tengslum við þetta skal stofn-
unin annast útgáfu fræðirita og gangast
fyrir ráðstefnum, námskeiðum og fyrir-
lestrum.
2. Stofnunin skal safna gögnum um ís-
lenskt nútímamál og varðveita þau. í stofn-
uninni skal vera aðstaða til að vinna úr
þessum gögnum.
3. Stofnunin skal sinna verkefnum íhag-
nýtum málvísindum, svo sem annast rann-
sóknir á verkefnum er varða móðurmáls-
kennslu í skólum, gangast fyrir námskeið-
um fyrir kennara og fást við hvað annað er
hagnýtt gildi getur haft í kennslu íslenskrar
og almennrar málfræði.
4. Stofnunin skal vinna að því að efla
tengsl rannsókna og kennslu eftir því sem
kostur er.
5. Stofnunin skal kosta kapps um að