Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 60
58
Árbók Háskóla íslands
Sagnfræði .............. 3(3) 2(2) 1(1) 6(6) 11
Spænska ................ 1(1) 1 2(1) 1
Sænska ................. 1(1) 1(1) 1
Pýska................... 1(1) 1(1) 2(2) 5
Annað (þjóðfræði) ...... 3
12(10) 13(9) 8(14) 8(7) 41(40) 71
Af töflu II má sjá að fjöldi stundakenn-
ara í deildinni hefur farið hlutfallslega vax-
andi miðað við fjölda fastra kennara, sem
fjölgaði ekki að sama skapi þessi ár. Þó er
ekki öll sagan sögð þegar borinn er saman
fjöldi kennara. Stundakennarar kenna
sumir mikið en aðrir lítið og einnig misjafn-
lega mikið frá ári til árs, og er heppilegra að
miða við tölur um skiptingu vinnumagns að
baki kennslu og prófum á fasta kennara
annars vegar og stundakennara hins vegar.
Samkvæmt upplýsingum í skýrslu Þróunar-
nefndar H.í. frá júní 1986 kemur í ljós að
háskólaárið 1984-85 voru fastir kennarar í
heimspekideild með 36 967 vinnustundir
við kennslu og próf, eða 48,8%, en stunda-
kennarar 38 804 stundir eða 51,21%
Breytingar á kennaraliði
Prír kennarar deildarinnar hafa látið af
störfum síðan 1982. Gérard Lemarquis,
maitrise, sem var settur lektor í frönsku, lét
af því starfi 31. júlí 1983, og var dr. Pórhild-
ur Ólafsdóttir sett í hans stað 1. ágúst 1983
og skipuð ári síðar. Peter S0by Kristensen,
mag. art., dósent í dönsku, hætti störfum
30. nóvember 1984 og hvarf til starfa í Dan-
mörku eftir 10 ára starf í heimspekideild.
Peter Rasmussen, mag. art., varsetturlekt-
or í hans stað frá 1. janúar til 31. maí 1985,
en 1. júní tók Lars Brink, cand. mag., við
embætti prófessors í dönsku, sá fyrsti sem
því embætti gegnir, og féll þá lektorsstaðan
niður. Þórður Örn Sigurðsson, M.A., lekt-
or í rómönskum málum með sérstöku tilliti
til spænsku, fékk lausn frá starfi 31. janúar
1985, og tók Sigrún Á. Eiríksdóttir, M.A.,
við starfi hans.
Baldur Jónsson, mag. art., dósent, var
skipaður í nýtt embætti forstöðumanns ís-
lenskrar málstöðvar, sem er jafnframt pró-
fessor í íslenskri málfræði, frá 1. apríl 1985.
í stöðu þá sem hann gegndi áður var dr.
Kristján Árnason skipaður lektor frá 1. júlí
1985. Ný staða fékkst í íslenskum bók-
menntum, og var Davíð Erlingsson, cand.
mag., settur lektor 1. ágúst 1983 og skipað-
ur ári síðar.
í spænsku hlotnaðist deildinni ný lekt-
orsstaða, sem er að hluta til launuð af
spænska ríkinu en að hluta til kostuð af
stundakennslufé. Var Aitor Yraola Lopez,
licenciado, ráðinn í þessa stöðu 1. janúar
1984 og hefur gegnt henni síðan.
Nokkrar breytingar urðu í liði erlendra
lektora í heimspekideild þessi ár. Claus
Lund, mag. art., lét af lektorsstarfi í
dönsku í september 1983, og tók Lisa von
Schmalensee, mag. art., við starfi hans 1.
október 1983. Bent Chr. Jacobsen, mag.
art., lét af lektorsstarfi í dönsku 31. ágúst
1984, og Keld Gall Jprgensen, cand. mag.,
tók við. Jean Guichard, C.A.P.E.S., lét af
starfi lektors í frönsku í september 1985, og
við tók Jean-Frangois Fiévet, C.A.P.E.S.
Helena Porkola, fil. mag., lektor í finnsku,
lét af starfi í byrjun september 1985, og tók
Timo Karlsson, fil. kand., við starfinu 15.
nóvember sama ár.
Nokkrir lektorar voru fluttir í dósents-
stöður á þessu tímabili. Arnór Hannibals-
son og Þorsteinn Gylfason voru skipaðir
dósentar í heimspeki 1. janúar 1983, Peter
Spby Kristensen var settur dósent í dönsku
og Mikael M. Karlsson ráðinn dósent í
heimspeki frá 1. janúar 1983. Svavar Sig-