Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 99
Verkfræði- og raunvísindadeild og fræðasvið hennar
97
1-7. 1985 var Jakob Yngvason, dr. rer.
nat. (f. 23.11.1945), settur prófessor í eðlis-
fræði til eins árs. (Prófessorsembætti ÞS.)
1.9.1985 var Gestur Ólafsson, dipl. arch.
(f- 8.12. 1941), settur í hlutastöðu dósents
(37%) íbyggingarverkfræðiskor. 15.9.1985
var Hilmar Sigurðsson, cand. polyt. (f. 7.3.
1936), einnig settur í hlutadósentsstöðu
(37%) við byggingarverkfræðiskor. (Pró-
fessorsembætti EBP.)
15.9.1985 voru BjarniÁsgeirsson, Ph.D.
(f- 18.3. 1953), lífefnafræðingur, og Guð-
itundur G. Haraldsson, dr. phil. (f. 25. 2.
1953), efnafræðingur, settiríhálfa dósents-
stöðu hvor í efnafræðiskor til eins árs.
(Dósentsstaða JBB.)
1-2.1986 var SnorriAgnarsson, Ph.D. (f.
30.12. 1955), settur í tímabundna lektors-
stöðu í stærðfræðiskor til eins árs.
1-5. 1986 var Jakob K. Kristjánsson,
Ph-D. (f. 2.2. 1952), settur í tímabundna
lektorsstöðu í líffræðiskor til 31.12. 1986.
Launalaus leyfi
Eggert Briem, prófessor í stærðfræði, var
ílaunalausu leyfi frá 1.9.1982 til 31.7.1983.
I fjarveru hans var Reynir Axelsson, dr.
rer- nat., settur til að gegna embættinu
sama tímabil.
Sigfús J. Johnsen, dósent í jarðeðlis-
fræði, fékk leyfi í fimm mánuði árið 1983,
frá 1.2. til 30.6. Leó Kristjánsson, Ph.D. (f.
26.7. 1943), var settur í dósentsstöðuna
santa tímabil.
GeirA. Gunnlaugsson, prófessor í véla-
verkfræði, fékk launalaust leyfi 1.5. 1983
sem síðan hefur oft verið framlengt, síðast
30.6.1986. Frá 1.1.1984 hefur verið sett í
embættið: Pétur K. Maack, lic. techn.,
1-1--31.12.1984 og aftur 1.4.-30.6.1986, og
Þorgeir Pálsson, Ph.D., 1.1. 1985-31.3.
1986.
Rögnvaldur Ólafsson, dósent í eðlis-
fræði, var í launalausu leyfi frá 1.8. 1983-
!-8.1986. Frá 1.8.1983-1.8.1986 var Einar
Júlíusson, Ph.D., settur til að gegna dós-
entsstöðunni.
Stefán Arnórsson, dósent í bergfræði,
fékk launalaust leyfi tvo mánuði frá 1.9. til
31.10.1984.
Halldór Þormar, prófessor í líffræði,
fékk launalaust leyfi í fimm mánuði frá 1.9.
1985 til 1.2.1986.
Sigmundur Guðbjarnason, dr. rer. nat.,
prófessor í efnafræði, var kjörinn rektor
Háskóla íslands vorið 1985. Fékk hann
lausn frá prófessorsembætti til 3ja ára, þ.e.
15.9.1985 til 14.9.1988, meðan hann gegnir
embætti rektors. Jón Bragi Bjarnason, dós-
ent í efnafræði, var settur prófessor í stað
Sigmundar til 3ja ára.
Jónas Elíasson, prófessor í byggingar-
verkfræði, fékk launalaust leyfi frá 1.11.
1985 til 23. jan. 1987. Snorri Páll Kjaran,
lic. techn., var settur til að gegna prófess-
orsembætti Jónasar frá 24. 1. 1986 til eins
árs.
Gistiprófessorar
Bendiks Skov-Petersen, rafmagnsverk-
fræðingur og aðjúnkt í teiknifræði við Há-
skólamiðstöð Álaborgar (AUC), var
gestaprófessor við verkfræðideild á vor-
misseri 1986 og kenndi teiknifræði. Auk
þess hélt hann námskeið á vegum Verk-
fræðistofnunar um miðlun tæknilegra upp-
lýsinga. Bendiks lauk meistaraprófi við
DTH árið 1955 og hefur starfað við AUC
meginhluta starfsaldurs síns.
Lorne M. Chanin, Minnesota-háskóla,
var gistiprófessor í plasma-efnafræði.
John Gilbert, Ph.D., prófessorvið Corn-
ellháskóla í Bandaríkjunum, var gisti-
prófessor í tölvunarfræði við stærðfræði-
skor á haustmisseri 1985 og kenndi eitt
þriggja eininga námskeið er nefndist
Greining algoriþma. John Gilbert lauk
doktorsprófi í tölvunarfræði við Stanford-
háskóla í Bandaríkjunum 1981 og hefur
starfað við Cornellháskóla síðan.