Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 80
78
Árbók Háskóla íslands
slag til endelig afslutning af sagen om hánd-
skriftudleveringen skal vi henstille til de to
landes undervisningsministre, at de s0ger
udveje for
1) at alle de islandske hándskrifter, som
forbliver i Den arnamagnæanske Samling i
Kdbenhavn, og et af Det arnamagnæanske
Institut i Island foretaget udvalg af tilsvar-
ende hándskrifter pá Det kongelige Biblio-
tek affotograferes til brug for instituttet i
Island,
2) at de i K0benhavn tilbageblivende
hándskrifter konserveres og restaureres i
forn0dent omfang pá samme máde som de
til Island udleverede,
3) i fremtiden at styrke de to institutters
muligheder for at drive forskning pá grund-
lag af de der værende samlinger af norrpne
hándskrifter."
Pessar tillögur samningamanna voru síð-
an samþykktar og undirritaðar af danska
kennslumálaráðherranum og íslenska
menntamálaráðherranum hinn 26. febrúar
1986, hin fyrri sem tillaga („indstilling") til
danska forsætisráðherrans, hin síðari sem
samstarfssamningur (,,samarbejdsaftale“)
milli íslenska menntamálaráðherrans og
danska kennslumálaráðherrans. Og til
staðfestingar því, að handritamálið væri nú
fullkomlega á enda kljáð, gerðu ráðherr-
arnir tveir loks sérstaka bókun sem þeir
undirrituðu við hátíðlega athöfn á Þing-
völlum 1. ágúst 1986. Bókun þessi var gerð
bæði á dönsku og íslensku, þannig að báðir
textar voru jafngildir. Hún er staðfesting á
tillögu og samstarfssamningi ráðherranna
frá 26. febrúar 1986, sjá hér á undan.
Meðan þessu hefur fram farið hafa hand-
ritin borist heim jafnt og þétt.
Starfsfólk
Fjölgun hefur ekki orðið í starfsliði
Árnastofnunar á árabilinu 1982-86, en
nokkur mannaskipti hafa orðið.
Davíð Erlingsson lét af starfi styrkþega í
árslok 1983, en við starfi hans tók frá 1. jan-
úar 1984 Sverrir Tómasson, cand. mag.
Einar Gunnar Pétursson lét einnig af
starfi styrkþega í árslok 1983, en í stað hans
var ráðinn Helgi Porláksson, cand. mag.,
frá 24. apríl 1984.
Þá lét Sveinbjörn Björnsson næturvörð-
ur af starfi 1. júní 1986, en við tók Tómas
Oddsson.
í lok þessa tímabils (að hausti 1986) var
starfslið Árnastofnunar sem hér segir:
Forstöðumaður:
Jónas Kristjánsson prófessor
Handritafræðingar:
Bjarni Einarsson
Jón Samsonarson
Ólafur Halldórsson
Stefán Karlsson
Þjóðfræðingur:
Hallfreður Örn Eiríksson
Styrkþegar:
Guðrún Ása Grímsdóttir
Helgi Þorláksson
Sigurgeir Steingrímsson
Sverrir Tómasson
Ritari:
Eva Úlfarsdóttir
Bókavörður:
Ásdís Egilsdóttir
Ljósmyndari:
Jóhanna Ólafsdóttir
Næturverðir:
Reynir Unnsteinsson
Tómas Oddsson
Ræstingakona:
Málfríður Emilía Brink
Útgáfustörf
Á árunum 1982-86 komu eftirtaldar
bækur út í röðinni Rit Stofnunar Árna
Magnússonar:
Lárus H. Blöndal, Um uppruna Sverris-
sögu, 1982.
Vésteinn Ólason, The Traditional Bal-
lads of Iceland, 1982.
Frásögur umfornaldarleifar1817-18231-