Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 180
178
Árbók Háskóla íslands
Sigmundur Guðbjarnason hlaut því 181
+ 62,7, eða alls 243,7 atkvæði. Er það
53,8% greiddra atkvæða.
Páll Skúlason hlaut 105 + 74,3, eða alls
179,3 atkvæði. Er það 39,6% greiddra at-
kvæða.
Jónatan Pórmundsson hlaut 5 + 7,8, eða
alls 12,8 atkvæði. Er það 2,8% greiddra at-
kvæða.
Júlíus Sólnes hlaut 8 + 2,8, eða alls 10,8
atkvæði. Er það 2,4% greiddra atkvæða.
Aðrir hlutu miklu færri atkvæði eins og
að ofan greinir.
Samkvæmt háskólalögum er sá rétt kjör-
inn rektor, sem hlotið hefur meiri hluta
greiddra atkvæða.
Sigmundur Guðbjarnason er því rétt
kjörinn rektor fyrir tímabilið 15. september
1985 til 15. september 1988.
í kjörstjórn vegna rektorskjörs 1985
Einar Sigurðsson
Jóhannes L. L. Helgason
Jón Friðjónsson
Karl V. Matthíasson
Tryggvi Axelsson
Örn Helgason.
Reglugerðir
Tekin var til umræðu tillaga að breytingu
á reglugerð vegna verkfræðideildar og
raunvísindadeildar og fram lögð ný tillaga
að reglugerð fyrir raunvísindadeild, þar
sem gert er ráð fyrir að efnafræðiskor verði
skipt í tvær skorir, efnafræðiskor og mat-
vælafræðiskor. Tillögurnar voru sam-
þykktar samhljóða. 27.06.85
Lagt fram bréf mrn.*, dags. 10. júlí sl.
Staðfest hefur verið breyting á 91. gr. reglu-
gerðar fyrir Háskóla íslands varðandi við-
skiptadeild. 12.09.85
II. Málefni deilda og stofnana
Námsbrautir í hjúkrunarfræðum og
sjúkraþjálfun
Fulltrúar læknadeildar í stjórn náms-
brautar í hjúkrunarfræði eru Gunnar Bier-
ing dósent og Stefán B. Sigurðsson lektor.
Fulltrúar deildarinnar í stjórn námsbrautar
í sjúkraþjálfun eru Guðmundur S. Jónsson
dósent og Grétar Guðmundsson læknir.
Fulltrúi háskólaráðs í stjórn námsbraut-
ar í hjúkrunarfræði var kjörinn Þórólfur
Þórlindsson prófessor.
27.09.84 06.12.84
islensk málnefnd
Háskólaráð tilnefndi Þórhall Vilmund-
arson prófessor fulltrúa sinn í íslenska mál-
nefnd til fjögurra ára. 24.01.85
Reiknistofnun
í stjórn Reiknistofnunar til tveggja ára
tilnefnir verkfræði- og raunvísindadeild
Odd Benediktsson prófessor og Sigfús
Björnsson dósent. Til vara Sven Þ. Sig-
urðsson dósent og Gylfa Árnason dósent.
Viðskiptadeild tilnefnir Ragnar Árna-
son lektor, og til vara Jón Þ. Þórhallsson
dósent.
Af hálfu háskólaráðs var Halldór Guð-
jónsson kennslustjóri kjörinn í stjórnina.
22.11.84
Tannlæknadeild
Lögð var fram tillaga að erindisbréfi fyrir
nefnd, er meta skal kennsluaðstöðu í tann-
læknadeild, svohljóðandi:
*Menntamálaráðuneyti jafnan skammstafaö svo.