Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 136
134
Árbók Háskóla ísiands
marga aðila í þjóðmáiakönnunum þessum,
eða hátt á þriðja tug. Er þar um að ræða
ráðuneyti, opinberar stofnanir, hagsmuna-
samtök, fjölmiðla og einstök fyrirtæki.
Fyrirtækin eru af mörgum toga, en einkum
þó úr verslun, þjónustu og iðnaði.
4. Félagsvísindastofnun gerðist aðili að
alþjóðlegri rannsókn á tengslum velferðar-
ríkis og vinnumarkaðar. í tengslum við það
verkefni kom Jon Eivind Kolberg, prófess-
or við háskólann í Bergen, í heimsókn til
stofnunarinnar í desember 1985 og hélt op-
inberan fyrirlestur á vegum hennar. í fyrir-
lestrinum fjallaði Kolberg um þjóðfélags-
fræðilegar kenningar um velferðarríkið.
5. Stofnuninni var falið að gera könnun
á framtíðarsýn ungmenna fyrir fram-
kvæmdanefnd forsætisráðherra um fram-
tíðarkönnun. Leitað var til framhalds-
skólanema og félaga í Verslunarmannafé-
lagi Reykjavíkur. Umsjón með verkinu
höfðu Þorbjörn Broddason dósent og dr.
Elías Héðinsson lektor. Framtíðarnefnd-
inni var fengin skýrsla með niðurstöðu
könnunarinnar í mars 1986 og verður hún
birt með öðrum skýrslum nefndarinnar í
bók á næstunni.
6. Allnokkuð hefur verið um verkefni
við gagnameðhöndlun og tölvuúrvinnslu
fyrir aðila utan jafnt sem innan háskólans.
Af hálfu stofnunarinnar hafa dr. Friðrik H.
Jónsson og dr. Elías Héðinsson haft um-
sjón með þeim verkefnum.
7. Sumarið 1986 gaf stofnunin út sitt
fyrsta fræðirit. Það ber heitið íslenska hús-
nœðiskerfið: Rannsókn á stöðu og þróun
húsnœðismála og er eftir Inga Val Jó-
hannssson og Jón Rúnar Sveinsson. í rit-
inu, sem er um 160 síður að lengd, er greint
frá könnun á húsnæðismálum sem höfund-
arnir gerðu á höfuðborgarsvæðinu árið
1979, en auk þess eru framreiddar aðrar ít-
arlegar upplýsingar um efnið. Ritið er selt í
bóksölum og til bókasafna, en auk þess
hefur Húsnæðisstofnun ríkisins heitið
nokkrum styrk til útgáfunnar. Vonast er til
að útgáfan standi undir kostnaði.
8. Félagsvísindastofnun gerði samning
við Ríkisútvarpið, Samband íslenskra
auglýsingastofa, Stöð 2 og Bylgjuna um
framkvæmd reglulegra kannana á notkun
hljóðvarps og sjónvarps. Samningurinn
gerir ráð fyrir að gerðar verði 4 til 6 kann-
anir á einu ári. Á árinu voru gerðar þrjár
slíkar kannanir sem náðu til landsins alls.
Úrtakið var 800-900 manns á aldrinum 15-
70 ára, og var könnuð hlustun á útvarp í tvo
daga og notkun sjónvarps í eina viku. Upp-
lýsingarnar voru greindar eftir aldri, kyni
og búsetu, en auk þess voru ýmis önnur
sératriði könnuð fyrir aðilana. Umsjón
með þessu verkefni höfðu dr. Elías Héðins-
son og Þorbjörn Broddason, en auk þess
störfuðu Emil Thóroddsen, dr. Friðrik H.
Jónsson, Ólafur Þ. Harðarson og dr. Stef-
án Ólafsson að þessum verkefnum. í fram-
haldi af þessu hefur verið ákveðið að gerð
verði sérstök könnun á fjölmiðlanotkun
barna og unglinga á fyrri hluta ársins 1987.
9. Mikið hefur verið leitað til stofnunar-
innar um margvísleg minni verkefni, svo
sem ráðgjöf og tæknilega aðstoð.
10. Innan stofnunarinnar starfar sérstök
rannsóknarstöð í bókasafns- og upplýs-
ingamálum undir stjórn Daníels Bene-
diktssonar lektors. Á vegum hennar hefur
verið unnið að gerð heimildaskrár um mál-
efni aldraðra og undirbúningi að útgáfu af-
mælisskrár íslenskra rithöfunda.
Skýrslur Félagsvísindastofnunar:
Stærri skýrslur:
Húsnœðismál unga fólksins 1985, eftir
Stefán Ólafsson. (Nóvember 1985.)
Landbúnaður og atvinnulíf skýrsla eftir
Gunnar Helga Kristinsson. (Júní 1986.)
Stjórnmálaviðhorf 1: Fylgi flokka í Al-
þingiskosningum, aldurs- og kynskipting
kjósenda, flœði milli flokka, stéttaskipting
fylgis og fylgi ríkisstjórnarinnar í maí 1986,