Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 188
186
Árbók Háskóla íslands
IX. Tengsl háskólans við aðrar stofnanir
Fulbright
Lagt fram bréf mrn., dags. 29. jan. sl.
Rektor er endurskipaður í stjórn Mennta-
stofnunar Bandaríkjanna á íslandi fyrir
árið 1985. 07.03.85
Náttúrugripasafn
í nefnd vegna Náttúrugripasafns var
Sveinbjörn Björnsson prófessor til-
nefndur. 12.09.85
X. Ýmislegt
Kennsla á Akureyri
Lagðar voru fram umsagnir um nefndar-
álit um kennslu á háskólastigi á Akureyri
frá háskólabókaverði, dags. 30. maí sl.,
heimspekideild, dags. 4. júlí sl., viðskipta-
deild, dags. 9. júlí sl., og námsbraut í
sjúkraþjálfun, dags. 6. ágúst sl.
18.04.85 12.09.85
Háskólaútvarp
Lagt var fram bréf menntamálanefndar
Stúdentaráðs Háskóla íslands ásamt
nefndaráliti um háskólaútvarp, en Stúd-
entaráð samþykkti 30. apríl 1984, að kann-
aðir yrðu möguleikar á uppsetningu há-
skólaútvarps.
Fram kom svofelld tillaga frá fulltrúum
stúdenta í háskólaráði: „Háskólaráð álykt-
ar að skipa fjögurra manna nefnd til að at-
huga hvort gagnlegt og framkvæmanlegt sé
að stofna til reksturs háskólaútvarps og þá
hvenær og með hvaða hætti.“ Tillagan var
samþykkt samhljóða.
I nefnd til athugunar á því, hvort gagn-
legt og framkvæmanlegt sé að stofna til
reksturs háskólaútvarps, voru kjörnir Þor-
björn Broddason dósent, Halldór Guð-
jónsson kennslustjóri og fulltrúar stúdenta
Asgeir Jónsson og Jón Gunnar Grjetars-
son.
07.03.85 18.04.85 06.06.85
Könnunargögn
Lagt fram bréf forsætisráðherra, dags.
22. nóv. sl. Varðarþað könnunágildismati
og mannlegum viðhorfum íslendinga, sem
Hagvangur hf. annaðist í samvinnu vð
Gallup-fyrirtæki víða um heim. Háskóla ís-
lands eru boðin könnunargögnin, er fylgja
bréfinu, til varðveislu og frekari úrvinnslu.
í nefnd til að gera tillögur um varðveislu
og aðgang að könnunargögnum sem kunna
að vera falin Háskóla íslands, sbr. bréf for-
sætisráðherra frá 22. nóv. sl., eða gögnum
sem kunna að vera unnin innan háskólans,
voru kjörnir Björn Björnsson prófessor,
Ólafur Þ. Harðarson lektor, Páll Jensson
forstöðumaður, Stefán Már Stefánsson
prófessor og Þórólfur Þórlindsson prófess-
or.
Tekið fyrir nefndarálit um varðveislu
könnunargagna og aðgang að þeim, sbr.
14. lið síðustu fundargerðar. Þórólfur Þór-
lindsson gerði grein fyrir afstöðu nefndar-
innar. Tillögur nefndarinnar voru sam-
þykktar með 12 samhljóða atkvæðum.
í nefnd, sem ákvarðar um varðveislu og
notkun könnunargagna sem kunna að vera
falin Háskóla íslands, voru kjörnir til
þriggja ára Þórólfur Þórlindsson prófessor,
formaður, Stefán Már Stefánsson prófess-
or og Helgi Þórsson sérfræðingur.
06.12.84 24.01.85 06.06.85