Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 56
54
Árbók Háskóla íslands
einkum skortur á námsplássum í verk-
menntun og á verkmenntunarkennurum.
Ef taka ætti mið af þeim námsplássum, sem
örugg eru, við ákvörðun á fjölda stúdenta,
ætti einungis að taka inn 11 nemendur á ári.
Útvegun námsplássa í verkmenntun er því
oftast erfitt og tímafrekt verk.
Til þess að reyna að ráða bót á þessum
vanda hefur námsbrautin einkum gert
tvennt: 1) Haldið námskeið fyrir verk-
menntunarkennara í samvinnu við Félag ís-
lenskra sjúkraþjálfara og endurmenntun-
arstjóra H.f. 2) Lagt til að námsbrautin
reki göngudeildarþjónustu í sjúkraþjálfun,
þar sem nemendur gætu fengið verkmennt-
un. Þá má geta þess, að í janúar 1986 átti
einn kennara námsbrautarinnar frum-
kvæði að því, að stofnaður var áhugahópur
sjúkraþjálfara um verkmenntun, sem hef-
ur hagsmunamál verkmenntunarkennara á
stefnuskrá sinni.
Fjöldi brautskráðra stúdenta 1983-1986:
1983: 15. 1984:19. 1985:16. 1986: 10.
Þing norrænna kennara í sjúkraþjálfun
Frá upphafi hefur námsbrautin sent einn
kennara á árlega ráðstefnu norrænna
sjúkraþjálfarakennara. í júní 1985 var ráð-
stefnan haldin hér á landi í fyrsta sinn.
Hana sóttu 80 kennarar og verkmenntun-
arkennarar, þar af 60 erlendir. Aðalfyrir-
lestur ráðstefnunnar flutti Ella Kolbrún
Kristinsdóttir dósent, og fjallaði hann um
samverkun á námsferli í bóklegu og verk-
legu námi.
María Ragnarsdóttir
Lagadeild og fræðasvið hennar
Námstilhögun
Um námstilhögun í lagadeild sjá Árbók
Háskóla íslands 1981-1982, bls. 55 o. áfr.
Kennarar
Vorið 1986 voru þessir kennarar í fullu
starfi við lagadeild:
Arnljótur Björnsson, prófessor
Björn Þ. Guðmundsson, prófessor
Gaukur Jörundsson, prófessor
Guðrún Erlendsdóttir, dósent
Gunnar G. Schram, prófessor
Jónatan Þórmundsson, prófessor
Páll Sigurðsson, dósent
Sigurður Líndal, prófessor
Stefán Már Stefánsson prófessor og
Þorgeir Örlygsson, settur dósent.
Aðjúnktar voru:
Eiríkur Tómasson, hrl.
Garðar Gíslason, borgardómari
Ragnheiður Bragadóttir, cand. jur.
Deildarforsetar
Ðjörn Þ. Guðmundsson, prófessor, var
deildarforseti frá 15. september 1982 til 15.
september 1984.
Gaukur Jörundsson, prófessor, var
deildarforseti frá 15. september 1984 til 15.
september 1986.
Brautskráðir kandídatar
Fjöldi þeirra, sem luku embættisprófi í
lögfræði á tímabilinu frá 15. september
1982 til ársloka 1986, er þessi: 1983: 24.
1984: 35.1985: 25.1986: 31.
Erlendir fyrirlesarar
Prófessor Gabriela Shalev frá ísrael var
eina viku í október 1982 við lagadeild og
flutti fyrirlestra um samninga og skaða-
bótarétt fyrir stúdenta á 2. námsári.
Charles L. Black, Jr., prófessor við laga-
deild Yaleháskóla í Bandaríkjunum, heim-
sótti lagadeild í janúar 1983 og flutti fyrir-