Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 81
Heimspekideild og fræðasvið hennar
79
II. Sveinbjörn Rafnsson bjó til prentunar,
1983.
Duggals leiðsla. Ed. by Peter Cahill,
1983.
Bréf Gunnars Pálssonar I. Texti. Gunn-
ar Sveinsson bjó til prentunar, 1984.
Bréf Konráðs Gíslasonar. Aðalgeir
Kristjánsson bjó til prentunar, 1984.
Páll Vídalín, Recensus poetarum et
scriptorum Islandorum hujus et superioris
seculi. Viðauki séra Þorsteins Péturssonar.
I- Texti. Jón Samsonarson bjó til prentun-
ar. (íslensk bókmenntasögurit) 1985.
Gripla, safnrit Árnastofnunar sem Jónas
Kristjánsson ritstýrir, kom tvisvar út á
þessu tímabili: Gripla V, og Gripla VI,
1984.
Ljósprentanir handrita hafa engar kom-
út á þessu tímabili, en nokkur bindi eru í
undirbúningi, og einnig margar textaútgáf-
ur, tvö bindi af Griplu o.fl.
Tölvubúnaður
I ársbyrjun 1985 festi stofnunin kaup á
tölvum af gerðinni Compucorp ásamt Fu-
'Jtsu-nálaprentara. Compucorp-tölvur eru
hannaðar sem ritvinnslutölvur og hafa
þann kost fram yfir aðrar tölvur á mark-
aðnum að auðvelt er að auka nýjum rit-
táknum við þau sem fyrir eru og fá þau
fram bæði á skjámynd og prentara. Þetta
auðveldar mikið stafréttar uppskriftir
handritatexta samhliða því að nú er kleift
að fullvinna á stofnuninni allar útgáfubæk-
Ur hennar og senda þær á seguldiskum í
setningartölvu í prentsmiðju. Nú þegar er
verið að vinna hátt á annan tug bóka á tölvu
stofnunarinnar. Árið 1986 var sett upp
ttettenging fyrir móðurtölvu stofnunarinn-
ar og aukið við nokkrum útstöðvum.
Handritasýningar
, Sýningar handrita hafa verið opnar í
Arnastofnun á þessu tímabili með sama
hætti sem fyrr: á þriðjudögum, fimmtudög-
ttnt og laugardögum kl. 2-4 síðdegis, frá
miðjum júní fram í miðjan september.
Skipt var um handrit á sýningunni nær
miðju þessu tímabili, og var í hinni nýju
sýningu allmikil fjölbreytni, en þó lögð
mest áhersla á sagnahandrit. Að vetrinum
koma nemendur í grunnskólum og fram-
haldsskólum í fylgd kennara, og virðist sú
aðsókn heldur fara vaxandi. Rætt er um að
koma fastari skipan á þessar heimsóknir og
fræðslu um handritin í tengslum við þær.
Tvívegis hafa íslensk handrit verið léð til
sýningar erlendis:
Sýning í New York 1982. I tengslum við
menningarkynningu Norðurlanda í Banda-
ríkjunum árið 1982 (Scandinavia Today)
var sérstök sýning íslenskra handrita og
bóka í Pierpont Morgan bókasafninu í New
York. Par voru sýnd 19 handrit auk prent-
aðra bóka, og veggspjöld voru sett upp
með stækkuðum eftirmyndum úr handrit-
um. Sýningin var mjög fjölsótt, og var talið
að þangað hefðu komið um 25 þúsund gest-
ir. í sambandi við sýninguna var gefin út
myndarleg sýningarskrá með fróðleik um
íslenska sögu, bókmenntir og listir á forn-
um tímum. Sýningin var nefnd Icelandic
Sagas, Eddas, and Art.
Fjögur íslensk handrit voru sýnd á mikilli
íslandssýningu sem Austurríska-íslenska
félagið gekkst fyrir sumarið 1984 í Ríkis-
bókasafninu í Vínarborg. Tvö handrit voru
léð frá Árnastofnun, en tvö voru eign
bókasafnsins í Vín.
Fyrirlestrar voru haldnir í tengslum við
þessar sýningar. í New York töluðu Bjarni
Guðnason, Jónas Kristjánsson og Guðni
Kolbeinsson um íslenskar fornbókmennt-
ir, og í Vín var haldinn flokkur fyrirlestra
um Island þar sem Jónas Kristjánsson var
meðal mælenda.
Veggspjöld með handritamyndum hafa
einnig verið á sýningum hjá Fondation
Ferme du Grand-Cachot-de-Vent í Neu-
chatel í Sviss 1983 og í Lundúnum og Mad-
rid 1984 (sýning til minningar um William
Morris) og í Rochefort-sur-Mer í Frakk-