Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 79
Heimspekideild og fræðasvið hennar
77
Stofnun Árna Magnússonar á ísiandi
Lyktir handritamálsins
Skilanefnd íslensku handritanna í Dan-
ntörku lauk störfum sínum á því tímabili
sem hér er um að ræða. Hún hélt síðasta
fund sinn í september 1984 og hafði þá
haldið alls 42 fundi og sent danska forsætis-
ráðherranum 10 skrár um handrit sem fara
skyldu til íslands. Á skrám þessum voru
alls 1681 handrit úr Árnasafni (ásamt við-
aukasöfnum þess) og 108 úr Konunglega
bókasafninu. Einnig hafði nefndin afgreitt
til Islands í heilu lagi skjaladeildina í Árna-
safni (Diplomata Islandica).
Þegar kom fram á árið 1982 mátti ljóst
vera að skilanefndin kæmist ekki öllu
lengra, enda var tíunda og síðasta afhend-
■ngarskráin afgreidd 25. mars það ár.
Ágreiningur var um tæp 200 handrit í
Árnasafni, sem íslensku nefndarmennirnir
töldu eiga að falla í hlut íslendinga, en
dönsku fulltrúarnir töldu ekki falla undir
afhendingarlögin. Loks hjuggu íslensku
fulltrúarnir á hnútinn og afhentu tillögur
S1”nar til lykta málsins með bréfi til danska
forsætisráðherrans 29. júní 1983. Að beiðni
danska kennslumálaráðuneytisins lögðu
síðan dönsku nefndarmennirnir fram sínar
-dokatillögur“ 29. okt. til 1. nóv. sama ár.
f*ær voru í stuttu máli fólgnar í því að í stað
fyrrnefndra ágreiningshandrita skyldu ís-
lendingar fá í sinn hlut allmörg handrit úr
söfnum danskra manna, sem varðveitt eru
sem deildir í Árnasafni, einkum úr safni R.
Rasks. En þegar handritaskilin voru undir-
búin 1961 höfðu íslendingar ekki gert kröf-
ur til handrita úr þessum söfnum.
Eftir þetta leið alllangur tími án þess að
uúkil tíðindi gerðust. Að beiðni danska
kennslumálaráðuneytisins létu nefndar-
menn, bæði hinir dönsku og íslensku, í té
rökstuðning fyrir atkvæði sínu um hvert
hinna 198 ágreiningshandrita í Árnasafni.
Fundir voru haldnir með þátttöku ráðherra
og ráðuneytismanna beggja landa, og bréf
fóru á milli. í lok janúar 1986 var loks hald-
inn sérfræðingafundur í Kaupmannahöfn,
samkvæmt ákvörðun kennslumálaráð-
herra Danmerkur og menntamálaráðherra
íslands. Fundinn sátu af hálfu Dana John
Kousgárd Sörensen prófessor og Iver Kjær
lektor, en af íslands hálfu dr. Jakob Bene-
diktsson og Jónas Kristjánsson prófessor.
Dönsku fulltrúarnir þóttust ekki vera nægi-
lega sérfróðir um handritin, og var því
Jonna Louis-Jensen prófessor fengin þeim
til ráðuneytis. Til jafnvægis fengu íslensku
fulltrúarnir dr. Ólaf Halldórsson sér til full-
tingis. Fundurinn stóð í nokkra daga, og að
fundarlokum hinn 28. janúar undirrituðu
fyrrnefndir fjórir samningamenn skrá með
84 handritum af ágreiningslistanum sem
þeir voru einhuga um að láta fara til Is-
lands. Skránni fylgdi svohljóðandi bréf til
kennslumálaráðherra Danmerkur, Bertels
Haarders, og menntamálaráðherra ís-
lands, Sverris Hermannssonar:
„Hermed fplger et forslag til endelig af-
slutning af den sákaldte hándskriftsag mel-
lem Island og Danmark. . . . Efter for-
slaget skal, udover de pá udleveringslist-
erne 1-10 anfprte hándskrifter, yderligere
ialt 84 hándskrifter fra Den arnamag-
næanske Samling i Kpbenhavn udleveres
til Island, de er anfprt pá medfplgende
liste.
Vi er desuden enige om at henstille til
den islandske undervisningsminister, at
det pá udleveringsliste 3 anfprte hándskrift
AM 748, I, 4to deles, og at fol. 1-6 retur-
neres til Danmark."
í tengslum við lokatillöguna gerðu samn-
ingamenn aðra tillögu til ráðherranna, svo
hljóðandi:
„I fortsættelse af det her fremsatte for-