Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 96
94
Árbók Háskóla íslands
Iccland" og „Satellite Image Atlas of
Glaciers".
Erlirtg R0rdam, yfirverkfræöingur hjá
Miljdstyrelsen í Danmörku, og Lars
Bengtsson, prófessor við Uppsalaháskóla í
Svíþjóð, fluttu fyrirlestra á vegum verk-
fræðideildar H.í. og íslenska vatnafræðifé-
lagsins 18. október 1985. Fyrirlestur Rpr-
dams nefndist „Integreret vandplanlægn-
ing“, en fyrirlestur Bengtssons „Krav pá
tidsoplösning i snösmeltningsrutiner".
Colin Bell, prófessor við viðskiptadeild
Iowaháskóla í Bandaríkjunum, flutti fyrir-
lestur á vegum viðskiptadeildar og raunvís-
indadeildar H.I. og Skýrsluvéla ríkisins og
Reykjavíkurborgar 11. júní 1986. Fyrir-
lesturinn nefndist „Artificial Intelligence
Planning“.
Skrá um fyrirlestra er ekki tæmandi. Hér
er aðeins getið þeirra háskólafyrirlestra er
fluttir voru á vegum deildanna en auk þess
hafa Líffræðistofnun og Verkfræðistofnun
svo og Raunvísindastofnun staðið að mót-
töku erlendra vísindamanna sem hingað
hafa komið og flutt fyrirlestra fyrir almenn-
ing á vegum háskólans.
Ráðstefnur
Dagana 11.-12. mars 1983 efndi verk-
fræði- og raunvísindadeild til ráðstefnu um
kennslu og rannsóknir í sjávarútvegi er
haldin var í Norræna húsinu og í hátíðasal
Háskóla íslands. Á ráðstefnunni voru flutt
framsöguerindi um uppbyggingu menntun-
ar og rannsókna í sjávarútvegi (Arne M.
Bredesen prófessor, Þrándheimi), útvegs-
háskóla (Valdimar K. Jónsson prófessor),
hagnýtar rannsóknir í sjávarútvegi (Thor-
björn Digernes, dr. ing.), gerð sjávarút-
vegslíkans (Þorkell Helgason dósent),
upplýsingabanka fyrir skipstjóra (Oddur
Benediktsson prófessor), gæðastýringu og
framleiðsluskipulagningu í frystihúsum
(Pétur K. Maack dósent og Páll Jensson
forstöðumaður), rafvogir og tölvur í frysti-
húsum (Rögnvaldur Olafsson dósent) og
hagnýtar rannsóknir í sjávarútvegi á ís-
landi (Geir Arnesen yfirverkfræðingur,
Guðni Þorsteinsson fiskifræðingur og Emil
Ragnarsson verkfræðingur). Einnig fóru
fram umræður.
Umsjón með ráðstefnunni hafði Valdi-
mar K. Jónsson prófessor, en henni stýrði
Unnsteinn Stefánsson prófessor.
Nordic Symposium: Chemical tracersfor
studying water masses and physical proces-
ses in the sea var haldin í Reykjavík dagana
29. ágúst til 1. september 1984 að tilhlutan
Háskóla íslands (verkfræði- og raunvís-
indadeildar), Hafrannsóknastofnunar og
Nordisk Kollegium for Fysisk Oceano-
grafi.
Á ráðstefnunni voru saman komnir sér-
fræðingar frá mörgum löndum sem kannað
hafa sporefni í hafinu, en á síðari árum hef-
ur greining þeirra veitt miklar upplýsingar
um blöndun hafsins og hafstrauma. Enn-
fremur sóttu hana haffræðingar sem beitt
hafa hefðbundnum aðferðum við rann-
sóknir sínar. Skiptust þessir hópar á skoð-
unum og hugmyndum um samvinnuverk-
efni.
Á ráðstefnunni voru flutt um 30 erindi og
á eftir fóru fram umræður um efni þeirra.
Umsjón með undirbúningi að ráðstefn-
unni og framkvæmd hennar höfðu Unn-
steinn Stefánsson prófessor og Sven Aage
Malmberg haffræðingar, Hafrannsókna-
stofnun.
Breytingar á kennaraliði
Nýir fastakennarar
Alda Bryndís Möller var skipuð í hálfa
stöðu dósents í matvælafræði 1.1. 1983.
Alda erfædd27.5.1948. Lauk B.Sc.-prófi í
lífefna- og matvælafræði við University of
Leeds 1972 og Ph.D.-prófi í matvælafræði
við University of Reading 1976. Deildar-
stjóri í efnafræði við MA 1972-73. Stunda-
kennari við H.í. frá 1977 og aðjúnkt við