Búnaðarrit - 01.12.1921, Page 3
BÓNAÐARRIT
Búnaðarþing 1921.
I. Fundargerðir.
1. fundur.
Laugardaginn 25. júní.
Búnaðarþingið var sett laugardaginn 25. júní 1921,
kl. 10l/í árdegis.
Forseti bauð fulltrúana velkomna.
Síðan mintist hann Stefáns Stefánssonar skólameistara
og tóku menn undir það með því að standa upp. Gat
forseti um að allmikil breyting væri orðin á fulltrúa-
kosningu. Nokkrir hefðu beiðst undan endurkosningu,
svo sem Guðmundur Helgason, er lengi var forseti fje-
lagsins, Ágúst Helgason og Ásgeir Bjarnason. Þá skýrði
íorseti frá fulltrúakosningu. Gat um að kosning fulltrúa
íyrir Yesturland væri ólögleg, með því að engar kosn-
ingar hefðu farið fram í ísafjarðarsýslum. Ástæðan til
þess hefði verið sú, að brjef Búnaðarfjelagsins, dags. 31.
mars, hefði ekki borist sýslumanninum í ísafjarðarsýsl-
um fyr en eftir sýslufund, sem haldinn var óvenjulega
snemma. Þá gat íorseti þess, að í þeim sýslum, sem
kosið hefði verið, hefðu atkvæði fallið þannig, að þessir
þrír höfðu fengið jöfn atkvæði: Magnús Friðriksson á
Staðarfelli, Ólafur Erlendsson á Jörfa og Kristinn Guð-
laugsson á Núpi. Hinn síðastnefndi er nú mættur sem
fulltrúi fyrir Búnaðarsamband Vestfjarða, og bar forseti
14