Búnaðarrit - 01.12.1921, Page 8
206
BÚNAÐARRIT
þeirri íyrirspurn til háttvirtrar stjórnar Búnaðarfje-
lags íslands, hvort hún hafi gert bæjarstjórn Reykja-
víkur tilboð um ræktun lands í Possvogi, og gert við
hana samninga þar að lútandi, og ef svo er, hvernig
þeir samningar sjeu, og hvað fyrir stjórnarnefndinni
vaki með tilboðinu.
Forseti svaraði því, að um ræktun Fossvogs væru
ekki gerðir neinir bindandi samningar. Fjelagið heíði
hugsað sjer þetta ráð til þess að geta reynt ýms verk-
færi, t. d. þúfnabanann (BFrás“-vjelina), ef hann
kæmi, og önnur stærri verkfæri í sambandi við sýn-
inguna. Bæjarstjórn vildi síður lána landið með öðr-
um skilyrðum en þeim, að því yrði komið í rækt.
Fyrirspyrjandi lýsti yfir því að nefndin væri ánægð
með svarið. Spurningin hefði komið fram af þeirri
ástæðu, að nefndinni hefði virst svo sem Búnaðar-
fjelagið væri að komast inn á nýjar brautir með þvi,
að rækta fyrir aðra, en slíkt hefði neíndinni þótt
athugavert.
Málinu vísað til jarðræktarnefndar.
2. Reikninganefnd lagði fram álit sitt (þingskj. I), var
það lesið. Forseti svaraði (þingskj. II). Þá lagði hann
fram fjárhagsáætlun fjelagsstjórnar fyrir yfirstandandi
ár (þingskj. III).
Reikningarnir samþyktir með hliðsjón af áliti
reikninganefndar.
3. Búfjárræktarnefnd lagði fram álit sitt (þingskj. IV).
a. Um fóðurtilraunir á búfje.
Samþykt í einu hljóði.
b. Um einblendingsrækt.
Samþykt með 9 atkv. gegn 2.
c. Fyrirspurn um niðursuðu á kjöti.
Verður tekin fyrir á næsta fundi.