Búnaðarrit - 01.12.1921, Page 58
266
BÚNAÐAKRIT
Þeir sem til máls tóku, Jjetu í ljósi álit sitt, á fyrir-
lestrunum. Margir gerðu fyrirspurnir til fyrirlesara, og
var þeim greiðlega svarað.
Að umræðunum loknum var fundi slitið.
5 . f u n d u r
um búnaðarmálefni var settur föstudaginn 1. júlí kl.
8V2 síðd.
Fundargerð siðasta fundar var lesin upp og samþykt.
Þvi næst tilkynti forseti að fundarstjóri gæti ekki mætt
á fundinum í kvöld, og bað því Sigurð Sigurðsson,
ráðunaut, að taka að sjer fundarstjórn í þetta skifti.
Þá tilkynti fundarstjóri að Theódór Arnbjarnarson,
ráðunautur, mundi taia um
Hros8aræbt.
Ræðumaður byrjaði með að sýna fram á, hve mjög
hestarnir hefðu verið í hávegum hafðir til forna á ís-
iandi. Nefndi hann mörg dæmi úr Eddu og íslendinga-
sögunum. Þar næst fór hann nokkrum orðum um
hrossafjöldann, hve breytilegur hann hefði verið á hin-
um ýmsu tímum, og ástæðurnar til þeirra breytinga.
Þá skýrði hann frá, hvaða hestakyn hefðu tekið þátt í
myndun íslenska hestsins. Drap á kynbætur og notkun
á hestum til forna, og rakti sögu kynbótanna alt til
vorra tíma. Einnig mintist hann á horíellislögin, dýra-
verndunarfjelögin og hrossaútflutninginn. Þá skýrði hann
frá hugmyndum sínum um framtíðar-starfsemi í hrossa-
ræktinni, og lýsti skoðun sinni á markaðinum og
markaðshorfunum. Að lokum skýrði hann frá hvernig
hann áliti að íslenski hest.urinn ætti að geta orðið í
næstu framtíð.